Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Forstöðulæknir bæklunarskurðlækninga við Sjúkrahúsið á Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

12.10.2026

Umsóknarfrestur

22.10.2026

Forstöðulæknir bæklunarskurðlækninga við Sjúkrahúsið á Akureyri

Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) leitar að öflugum og framsýnum forstöðulækni bæklunarskurðlækninga. Um er að ræða 100% stöðu. Þetta er einstakt tækifæri fyrir reyndan sérfræðilækni til þess að hafa áhrif, leiða faglegt starf og stuðla að umbótum í heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni.

Leitað er að einstaklingi með leiðtogahæfni sem getur veitt faglega forystu, samhæft ólíka þætti starfseminnar og stuðlað að stöðugum umbótum í verklagi. Auk þess að byggja upp og þróa bæklunarskurðlækningar gegnir forstöðulæknir mikilvægu hlutverki í kennslu og vísindastarfi.

Skilyrði er að viðkomandi hafi fasta búsetu á Akureyri.

Hefur þú áhuga á að vera lykilmaður í framtíð bæklunarskurðlækninga á landsbyggðinni?

Staðan veitist frá 1. desember n.k. eða eftir nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Veita faglega forystu og leiða þróun bæklunarskurðlækninga

  • Ábyrgð á faglegu starfi og stuðla að umbótum

  • Styðja og leiða starfsfólk í krefjandi og spennandi starfsumhverfi

  • Tryggja gæði þjónustu og stuðla að ölfugri kennslu og vísindastarfi starfseiningarinnar

  • Forstöðulæknir er leiðtogi og hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi, þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og rekstrarábyrgð

Hæfniskröfur

  • Íslenskt lækningaleyfi og fullgild sérfræðiréttindi í bæklunarskurðlækningum

  • Fagleg reynsla, fræðileg þekking og reynsla af kennslu

  • Leiðtogahæfileikar og geta til að sjá tækifæri til umbóta og leiða umbótastarf og breytingar

  • Jákvætt viðmót, hæfileikar á sviði stjórnunar og kennslu og samskiptahæfni

  • Vera drífandi og tilbúinn að skapa jákvætt og kraftmikið starfsumhverfi

  • Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi

  • Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í mæltu og rituðu máli

  • Hreint sakavottorð

  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.

Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 22.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Helgi Þór Leifsson

framkvæmdastjóri klínískrar þjónustu

Tölvupóstur: hl1009@sak.is

Sími: 463-0100

Kristjana Kristjánsdóttir

deildarstjóri mannauðsdeildar

Tölvupóstur: kristjanak@sak.is

Sími: 463-0100

Þjónustuaðili

Sjúkra­húsið á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Forstöðulæknir bæklunarskurðlækninga við Sjúkrahúsið á Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

12.10.2026

Umsóknarfrestur

22.10.2026