Þjónustuaðili
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í fjármálum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
12.11.2026
Umsóknarfrestur
26.11.2026
Sérfræðingur í fjármálum
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið leitar eftir sérfræðingi í fullt starf á skrifstofu fjárlaga og rekstrar.
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf fyrir lausnamiðaðan, jákvæðan og skipulagðan einstakling með góða greiningarhæfni og frumkvæði. Viðkomandi þarf bæði að geta unnið sjálfstætt og í hópi og vera tilbúinn til að takast á við krefjandi verkefni við fjölbreyttar aðstæður.
Helstu verkefni og ábyrgð
Aðkoma að gerð fjármálaáætlunar og fjárlaga, sem og eftirfylgni með framkvæmd fjárlaga.
Tilfallandi verkefni tengd fjárreiðum þeirra málefnasviða og málaflokka sem falla undir ráðuneytið.
Eftirfylgni með framkvæmd laga um opinber fjármál (LOF).
Uppsetning, viðhald og þróun á starfrænum mælaborðum.
Þróun og innleiðing stafrænna lausna og gervigreindar til að bæta verklag, greiningu og framsetningu upplýsinga.
Frumkvæði að stafrænum umbótum og nýtingu gervigreindar í starfsemi ráðuneytisins.
Öflun upplýsinga og vinna við svörun fyrirspurna.
Samskipti við Fjársýslu ríkisins, fjármála- og efnahagsráðuneytið og önnur fagráðuneyti.
Samskipti við ríkisaðila sem heyra undir ráðuneytið og aðila sem það er í samningssambandi við.
Hæfniskröfur
Háskólapróf í viðskiptafræði, hagfræði, verkfræði eða sambærilegum greinum, framhaldsmenntun sem nýtist í starfi.
Mjög góð færni í vinnu með tölur og úrvinnslu gagna, þ.m.t. í Excel er áskilin.
Greiningarhæfni og fagleg dómgreind við mat á upplýsingum og valkostum ásamt hæfni til að rökstyðja og miðla niðurstöðum með skýrum hætti.
Kunnátta í meðferð gagna, s.s. í vöruhúsum og með framsetningu í PowerBI.
Góð stafræn færni og geta til að nýta tæknilausnir, s.s. sjálfvirknivæðingu og gervigreind, til að bæta verklag og úrvinnslu gagna.
Þekking á Orra fjárhagsbókhaldi ríkisins.
Þekking og reynsla af starfsemi og rekstri opinberra stofnana.
Þekking á lögum um opinber fjármál.
Hæfni til að miðla upplýsingum á skýran og greinargóðan hátt.
Geta til að veita ráðgjöf og leiðsögn til stofnana og samstarfsaðila á uppbyggilegan hátt.
Mjög gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins hafa gert.
Um fullt starf er að ræða og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins hafa gert.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg ferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningi fyrir hæfni umsækjanda í starfið.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna um auglýsingar á lausum störfum nr. 1000/2019.
Við ráðningar í störf hjá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu er tekið mið af jafnréttisáætlun Stjórnarráðsins.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 26.11.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í fjármálum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
12.11.2026
Umsóknarfrestur
26.11.2026