Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Barna- og fjölskyldu­stofa

Upplýsingar um starf

Starf

Ráðgjafar á meðferðarheimilinu Bjargey í Eyjafjarðarsveit

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

12.11.2026

Umsóknarfrestur

23.11.2026

Ráðgjafar á meðferðarheimilinu Bjargey í Eyjafjarðarsveit

Vilt þú taka þátt í gefandi og fjölbreyttu starfi með börnum og unglingum? Barna- og fjölskyldustofa auglýsir stöðu ráðgjafa á meðferðarheimilinu Bjargey að Laugalandi í Eyjafjarðarsveit. Meðferðarheimilið er ætlað stúlkum og kynsegin á aldrinum 13-18 ára sem þurfa á langtímameðferð að halda sem ekki er unnt að veita inni á heimili viðkomandi.

Starfið felur í sér einstaklingsmiðaðan stuðning og þátttöku í meðferðarstarfi með það að markmiði að stuðla að velferð, þroska og farsæld barna og unglinga í öruggu og styðjandi umhverfi. Meðal annars er unnið skv. hugmyndafræði áfallamiðaðrar nálgunar, atferlismótunar og skilmálamiðaðrar vímuefnameðferðar.

Um er að ræða 50 til 100% starf í vaktavinnu. Starfið heyrir undir forstöðumann og deildarstjóra heimilisins.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Einstaklingsmiðaður stuðningur m.a. við daglegar athafnir, félagsfærni, sjálfstæði og virkni.

  • Vinna eftir verklagsreglum og þeim gagnreyndu aðferðum sem unnið er eftir á Bjargey.

  • Að stuðla að öruggu, styðjandi og uppbyggilegu umhverfi.

  • Samstarf og samskipti við börn og unglinga, forsjáraðila og aðra samstarfsaðila.

  • Skráning og miðlun upplýsinga samkvæmt verklagsreglum.

  • Almenn heimilisstörf og önnur tilfallandi verkefni samkvæmt fyrirmælum stjórnenda.

Hæfniskröfur

  • Menntun og/eða reynsla sem að mati forstöðumanns nýtist í starfi.

  • Áhugi á starfi með börnum og unglingum sem þurfa sérhæfðan stuðning.

  • Góð samskipta- og samstarfshæfni.

  • Frumkvæði, skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.

  • Hæfni til að takast á við krefjandi aðstæður af yfirvegun og fagmennsku.

  • Sveigjanleiki, lausnamiðuð nálgun og þjónustulund.

  • Góð íslenskukunnátta í mæltu og rituðu máli.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Við úrvinnslu umsókna um störfin gildir mat Barna- og fjölskyldustofu á hæfni og eiginleikum umsækjenda. Vakin er athygli á að stofnunin aflar sjálf upplýsinga úr sakaskrá áður en viðkomandi hefur störf. Barna- og fjölskyldustofa hvetur öll til að sækja um, óháð kyni.

Með umsóknum skulu fylgja upplýsingar um menntun og fyrri störf. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá birtingu ef starf losnar að nýju innan þess tíma.

Starfshlutfall er 50-100%

Umsóknarfrestur er til og með 23.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Ólína Freysteinsdóttir

Tölvupóstur: olina.freysteinsdottir@bofs.is

Katrín Árnadóttir

Tölvupóstur: katrin.arnadottir@bofs.is

Þjónustuaðili

Barna- og fjölskyldu­stofa

Upplýsingar um starf

Starf

Ráðgjafar á meðferðarheimilinu Bjargey í Eyjafjarðarsveit

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

12.11.2026

Umsóknarfrestur

23.11.2026