Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Austur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sálfræðingur - Heilsugæsla - Heilbrigðisstofnun Austurlands

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

08.07.2026

Umsóknarfrestur

10.08.2026

Sálfræðingur - Heilsugæsla - Heilbrigðisstofnun Austurlands

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða sálfræðing til starfa á heilsugæslu stofnunarinnar. Um er að ræða 100% tímabundið starf sálfræðings innan heilsugæslusviðs HSA. Staðan veitist frá 1. september 2026 til eins árs, eða eftir nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Óskað er eftir sálfræðingi í heilsugæslu HSA til að veita almenna sálfræðiþjónustu fyrir fullorðna í opinni móttöku á heilsugæslusviði. Viðkomandi þarf að hafa reynslu af því að greina og meðhöndla þunglyndi og kvíða. Innan starfs fellur forvarnarvinna, greining á tilfinningavanda, mat á sjálfsvígsáhættu, meðferð við vægum til miðlungs alvarlegs geðræns vanda og þátttaka í skipulagningu og þróun sálfræðiþjónustu í opinni móttöku á Austurlandi í samvinnu við yfirsálfræðing og geðlækni geðheilbrigðisþjónstu HSA.

Helstu verkefni: Forvarnir, greining á tilfinningavanda, mat á alvarleika einkenna og þátttaka í stefnumótun sálfræðiþjónustu heilsugæslunnar á Austurlandi.

Inni á stofnuninni er einnig starfandi þverfaglegt geðheilsuteymi þar sem alvarlegri geðrænum vanda er sinnt, viðkomandi myndi vinna í nánu samstarfi við teymið og undir handleiðslu sérfræðings í klínískri sálfræði.

Hæfniskröfur

Réttindi til að starfa sem sálfræðingur á Íslandi. Reynsla af klínísku starfi æskileg . Þekking og reynsla af hugrænni atferlismeðferð. Reynsla af notkun sálfræðilegra prófa og greiningartækja æskileg. Samskiptahæfni og sveigjanleiki. Ökuréttindi. Góð íslenskukunnátta. Lögð er áhersla á faglegan metnað, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika.


Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.

Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf. Sé sótt um í opinni starfsumsókn ber að tilgreina við hvað viðkomandi óskar að starfa og hvar. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 10.08.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sigurlín Hrund Kjartansdóttir

Yfirsálfræðingur

Tölvupóstur: sigurlin.h.kjartansdottir@hsa.is

Sími: 8622793

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Austur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sálfræðingur - Heilsugæsla - Heilbrigðisstofnun Austurlands

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

08.07.2026

Umsóknarfrestur

10.08.2026