
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Ljósmóðir á meðgönguvernd og bráðaþjónusta kvennadeilda
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
40-80%
Starf skráð
20.10.2026
Umsóknarfrestur
02.11.2026
Ljósmóðir á meðgönguvernd og bráðaþjónusta kvennadeilda
Laust er til umsóknar starf ljósmóður við meðgönguvernd og bráðaþjónustu kvennadeilda. Starfið er tímabundið frá 1. desember 2026, eða samkvæmt samkomulagi, til 1. október 2027.
Deildin sinnir konum við eftirlit og umönnun vegna áhættuþátta á meðgöngu, sem og vegna bráðra vandamála sem upp kunna að koma á meðgöngu eða eftir fæðingu. Deildin sinnir jafnframt konum í upphafi og aðdraganda fæðingar ásamt einstaklingum með bráð vandamál vegna kvensjúkdóma.
Starfshlutfall er 40-80% og unnið er á morgun-, kvöld- og helgarvöktum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Meðgönguvernd einstaklinga sem krefjast sérhæfðs eftirlits á meðgöngu
Móttaka og umönnun kvenna með bráð vandamál á meðgöngu eða eftir fæðingu
Móttaka og umönnun kvenna í upphafi og aðdraganda fæðingar
Móttaka og umönnun kvenna með bráð vandamál vegna kvensjúkdóma eða einkenna frá kvenlíffærum
Símsvörun og símaráðgjöf vegna kvensjúkdóma og bráðra vandamála á meðgöngu og eftir fæðingu
Virk þátttaka í faglegri þróun, teymis- og umbótastarfi
Klínísk kennsla nema á deild
Hæfniskröfur
Íslenskt ljósmóðurleyfi
Íslenskt hjúkrunarleyfi er kostur
Sjálfstæði í vinnubrögðum og hæfni til að vinna í teymi
Góð samskiptahæfni og jákvætt viðhorf
Faglegur metnaður og frumkvæði í starfi
2-5 ára starfsreynsla af ljósmóðurstörfum er kostur
Reynsla af hjúkrun á kvenlækningadeild er kostur
Áhugi á símaráðgjöf og bráðaþjónustu
Reynsla af vaktstjórn er kostur
Reynsla af símaráðgjöf er kostur
Góð íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Ljósmæðrafélag Íslands hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, ljósmóðir, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 40-80%
Umsóknarfrestur er til og með 02.11.2026
Nánari upplýsingar veitir
Jóhanna Ólafsdóttir
Tölvupóstur: joholafs@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Ljósmóðir á meðgönguvernd og bráðaþjónusta kvennadeilda
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
40-80%
Starf skráð
20.10.2026
Umsóknarfrestur
02.11.2026