Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður á dag- og göngudeild blóð- og krabbameinslækninga

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

18.09.2026

Umsóknarfrestur

01.10.2026

Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður á dag- og göngudeild blóð- og krabbameinslækninga

Heilbrigðisritari / skrifstofumaður óskast á dag- og göngudeild blóð- og krabbameinslækninga við Hringbraut.

Leitað er eftir þjónustuliprum einstaklingi sem er fljótur að tileinka sér ný verkefni, sýnir frumkvæði í starfi og á auðvelt með að starfa í teymi. Um er að ræða fullt dagvinnustarf sem felur í sér fjölbreytt, krefjandi verkefni og krefst góðrar samskiptahæfni.

Á deildinni starfar 30 manna þverfaglegur hópur sem sinnir sjúklingum með blóðsjúkdóma og krabbamein.

Við tökum vel á móti nýju starfsfólki og veitum góða og einstaklingsmiðaða aðlögun að starfi. Starfið er laust nú þegar eða eftir samkomulagi.

Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir sem stuðlar að betra jafnvægi milli vinnu og einkalífs.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn og sérhæfð ritarastörf á deild s.s. móttaka sjúklinga, tímabókanir, símsvörun og upplýsingagjöf

  • Ábyrgð á daglegum viðfangsefnum deildar samkvæmt verklagi

  • Önnur tilfallandi verkefni í samráði við deildarstjóra

Hæfniskröfur

  • Heilbrigðisritaranám, stúdentspróf eða annað nám og/ eða reynsla sem nýtist í starfi

  • Framúrskarandi samskiptahæfni og þjónustulipurð og færni til að takast á við krefjandi aðstæður

  • Góð almenn tölvufærni

  • Þekking á helstu tölvukerfum Landspítala er kostur

  • Skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi

  • Hæfni til að stýra ólíkum hópum eða teymi er kostur

  • Færni til að takast á við krefjandi aðstæður og stuðla að jákvæðum starfsanda á starfseiningu

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: heilbrigðisþjónusta, heilbrigðisritari, ritari, skrifstofumaður, skrifstofustarf

Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 3/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjvík

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 01.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Þórunn Sævarsdóttir

deildarstjóri

Tölvupóstur: torunnsa@landspitali.is

Sími: 825-3523

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Heilbrigðisritari/ skrifstofumaður á dag- og göngudeild blóð- og krabbameinslækninga

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

18.09.2026

Umsóknarfrestur

01.10.2026