
Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í heimilislækningum - Heilsugæslan Seltjarnarnesi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
22.10.2026
Umsóknarfrestur
09.11.2026
Sérfræðingur í heimilislækningum - Heilsugæslan Seltjarnarnesi
Heilsugæslan Seltjarnarnesi og Vesturbæ óskar eftir að ráða sérfræðing í heimilislækningum til starfa. Við leitum að lækni sem hefur áhuga á að taka þátt í fjölbreyttum, krefjandi og skemmtilegum verkefnum í starfi sem er í stöðugri þróun. Áhersla er lögð á þverfaglega teymisvinnu heilbrigðisstarfsfólks í lærdómsríku starfsumhverfi.
Á heilsugæslunni Seltjarnarnesi og Vesturbæ ríkir frábær starfsandi þar sem áhersla er lögð á góða samvinnu, starfsánægju og vellíðan í starfi.
Um er að ræða 100% ótímabundið starf og er æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1. desember nk. eða eftir nánara samkomulagi. Lægra starfshlutfall kæmi einnig til greina ef ekki fæst sérfræðingur í fullt starf og hvetjum við því alla lækna sem hafa áhuga að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfssvið heimilislæknis er víðtækt og felst m.a. í almennum lækningum, heilsuvernd, vaktþjónustu og kennslu nema. Hann veitir fræðslu og upplýsingar og leiðbeinir skjólstæðingum og aðstandendum. Heimilislæknir er virkur þátttakandi í þróun og uppbyggingu heimilislækninga, sinnir kennslu starfsfólks og nema og tekur þátt í vísinda-, þróunar- og gæðastarfi.
Hæfniskröfur
Íslenskt lækningaleyfi
Sérfræðimenntun í heimilislækningum
Skipulagshæfni, sjálfstæði í starfi og öguð vinnubrögð
Reynsla af kennslu er æskileg
Góð hæfni í mannlegum samskiptum
Reynsla og áhugi til samstarfs við aðrar starfsstéttir og þátttaka í teymisvinnu
Áreiðanleiki, faglegur metnaður, jákvæðni og sveigjanleiki
Góð almenn tölvukunnátta
Íslenskukunnátta skilyrði
Hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og kynningarbréf þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um læknismenntun, læknisstörf, vísinda- og rannsóknarstörf. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdastjóra mannauðs Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 09.11.2026
Nánari upplýsingar veitir
Emilía Petra Jóhannsdóttir
Tölvupóstur: emilia.petra.johannsdottir@heilsugaeslan.is
Tryggvi Baldursson
Tölvupóstur: tryggvi.baldursson@heilsugaeslan.is

Þjónustuaðili
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í heimilislækningum - Heilsugæslan Seltjarnarnesi
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
22.10.2026
Umsóknarfrestur
09.11.2026