Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Yfirlæknir - HSN Sunnuhlíð Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

04.09.2026

Umsóknarfrestur

14.09.2026

Yfirlæknir - HSN Sunnuhlíð Akureyri

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) óskar eftir að ráða framsýnan, metnaðarfullan og árangursdrifinn yfirlækni til starfa í Sunnuhlið á Akureyri.

Um er að ræða spennandi stjórnendastarf fyrir einstakling sem vill hafa raunveruleg áhrif á þróun, skipulag og gæði heilbrigðisþjónustu í nærumhverfi. Yfirlæknir gegnir lykilhlutverki í að leiða faglegt starf, móta framtíðarsýn þjónustunnar og stuðla að áframhaldandi umbótum í samstarfi við öflugt og samhent teymi yfirhjúkrunarfræðinga, forstöðumann sálfélagslegra þjónustu og annað sérhæft starfsfólk.

HSN leggur ríka áherslu á fagmennsku, gott samstarf og virka teymisvinnu. Við bjóðum upp á styðjandi og metnaðarfullt starfsumhverfi þar sem starfsþróun, velferð starfsfólks og góður starfsandi eru hafðir að leiðarljósi. Hjá okkur gefst tækifæri til að taka þátt í að móta þjónustu sem skiptir samfélagið máli og hefur áhrif á lífsgæði fólks.

Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri lækninga.

Kynntu þér hvers vegna þú ættir að koma norður og bætast í okkar öfluga hóp með því að smella á Komdu norður! | Heilbrigðisstofnun Norðurlands

Hér má sjá upplýsingar um verkefnið Heilsueflandi vinnustaður en heilsugæslan á Akureyri var fyrst allra heilsugæslustöðva að innleiða verkefnið.

Hér má sjá upplýsingar um teymisvinnu hjá HSN á Akureyri

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Veita faglega forystu og bera ábyrgð á læknisfræðilegri þjónustu og faglegri þróun hennar

  • Bera fagleg, stjórnunarlega og fjárhagslega ábyrgð á læknisfræðilegum þáttum starfseminnar

  • Taka þátt í stefnumótun, skipulagningu og áframhaldandi þróun þjónustu í samræmi við markmið og áherslur HSN

  • Efla þverfaglegt samstarf og stuðla að virkri teymisvinnu innan stofnunarinnar og við aðrar þjónustuveitendur

  • Skipulag starfsnáms læknanema

  • Taka þátt í vaktþjónustu samkvæmt nánara samkomulagi

  • Vinna samkvæmt stefnu, gildum og áherslum HSN

  • Annast stjórnun mannauðs og veita starfsfólki stuðning, leiðsögn og ráðgjöf í starfi

  • Stuðla að öryggi, gæðum og hagkvæmni í rekstri og þjónustu

  • Stuðla að góðum starfsanda, velferð starfsfólks og jákvæðri vinnustaðamenningu

  • Efla samstarf við aðrar heilbrigðisstofnanir, sveitarfélög og aðra hagsmunaaðila

  • Önnur tilfallandi stjórnunarverkefni

Hæfniskröfur

  • Íslenskt lækninga- og sérfræðileyfi í heimilislækningum er skilyrði

  • Haldbær reynsla af starfi við heimilislækningar

  • Framúrskarandi samskiptahæfni

  • Farsæl reynsla af stjórnun og gott álagsþol

  • Leiðtogahæfni s.s. færni til að virkja og leiða starfsfólk til góðra verka

  • Hæfni til að leiða breytingar, þróunar- og gæðaverkefni í þverfaglegu starfsumhverfi

  • Áreiðanleiki og helgun í starfi

  • Mjög góð skipulagshæfni nauðsynleg og reynsla af innleiðingu nýjunga

  • Frumkvæði og lausnamiðuð nálgun

  • Góð íslensku-, ensku- og tölvukunnátta

  • Hreint sakavottorð, gott orðspor og ökuleyfi

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Umsókninni skal fylgja náms- og starfsferilskrá auk kynningarbréfs á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið út frá hæfniskröfum auglýsingarinnar. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um læknismenntun, læknisstörf og vísinda- og rannsóknarstörf ásamt afriti af starfsleyfi.

Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfatorg.is með því að smella á hlekkinn hér að neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.

Heilbrigðisstofnun Norðurlands vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.

Gildi stofnunarinnar eru Fagmennska - samvinna - virðing.

Heilbrigðisstofnun Norðurlands veitir heilsugæsluþjónustu, sjúkrahúsþjónustu og öldrunarþjónustu og rekur rúmlega 190 sjúkra-, hjúkrunar- og dvalarrými. HSN sinnir einnig sálfélagslegri þjónustu á svæðinu. Meginstarfsstöðvar HSN eru á Akureyri, Blönduósi, Dalvík/Fjallabyggð, Húsavík og á Sauðárkróki. Íbúar á starfssvæði HSN, sem nær frá Blönduósi til Þórshafnar eru rúm 37.000 og starfsfólk er rúmlega 800 talsins.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 14.09.2026

Nánari upplýsingar veitir

Guðrún Dóra Clarke

framkvæmdastjóri lækninga

Tölvupóstur: gudrun.dora.clarke@hsn.is

Sími: 896 2495

Hildur Ösp Gylfadóttir

framkvæmdastjóri mannauðs

Tölvupóstur: hildur.osp.gylfadottir@hsn.is

Sími: 825 7986

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Yfirlæknir - HSN Sunnuhlíð Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

04.09.2026

Umsóknarfrestur

14.09.2026