Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðilæknir á Sýkla- og veirufræðideild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

02.10.2026

Umsóknarfrestur

26.10.2026

Sérfræðilæknir á Sýkla- og veirufræðideild

Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis á sýkla- og veirufræðideild (SVEID) Landspítala. Um er að ræða fjölbreytt sérfræðistarf þar sem áhersla er lögð á faglega þróun, gæði, kennslu og vísindastarf.

Starfshlutfall er 100%, nema að um annað sé samið. Skilyrði er sérfræðimenntun í sýkla- og/ eða veirufræði. Umsækjanda er gefinn kostur á því að starfa annaðhvort á sviði sýklafræði eða veirufræði, eða á báðum sviðum (sem væri æskilegt). Unnið er í dagvinnu og á bakvöktum með viðveru um helgar og á hátíðisdögum. Starfið er laust eftir samkomulagi.

Sýkla- og veirufræðideild Landspítala er þjónustu- og tilvísunarrannsóknastofa fyrir Ísland á sviði bakteríu-, veiru-, sveppa- og sníkjudýrafræði. Deildin vinnur með sóttvarnarlækni og öðrum heilbrigðisstofnunum að bættri lýðheilsu og öflun faraldsfræðilegra gagna. Jafnframt sinnir deildin menntun heilbrigðisstarfsfólks og vísindarannsóknum.

Starfsemi deildarinnar er á tveimur stöðum, í Ármúla 1a og á lóð Landspítala við Barónsstíg.

Á deildinni starfa um 80 einstaklingar, þar af eru nú sjö sérfræðilæknar auk sérfræðilækna í tímavinnu. Fjórir almennir læknar eru nú á deildinni.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Almenn sérfræðilæknisstörf á Sýkla- og veirufræðideild

  • Þátttaka í faglegri umsjón sérfræðilækna með starfseiningum deildarinnar

  • Val, þróun og innleiðing nýrra rannsókna- og greiningaaðferða í samráði við yfirlækni og aðra stjórnendur

  • Frumkvæði og þátttaka í gæðastjórnun

  • Túlkun og staðfesting rannsóknarniðurstaðna

  • Almenn ráðgjöf á sviði sýkla- og veirufræði til starfsfólks Landspítala og til annarra stofnana og fagaðila

  • Þátttaka í vöktum sérfræðilækna (bakvaktir með viðveru á hátíðisdögum og um helgar)

  • Kennsla og leiðsögn í faginu fyrir heilbrigðisstarfsfólk og nema

  • Þátttaka í vísindarannsóknum á sviði sýkla- og veirufræði er æskileg

  • Önnur verkefni sem taka mið af þekkingu og reynslu viðkomandi

Hæfniskröfur

  • Íslenskt sérfræðileyfi í sýkla- og/eða veirufræði eða uppfyllt skilyrði um íslenskt sérfræðileyfi, sem aflað yrði hið fyrsta

  • Íslensku- og enskukunnátta

  • Þekking og reynsla af veirufræði og/ eða bakteríu-, sveppa- og sníkjudýrafræði

  • Góð samskiptahæfni

  • Hæfni til að starfa bæði sem hluti af teymum og sjálfstætt

  • Þekking og reynsla af gæða-, öryggis- og umbótastarfi er æskileg

  • Reynsla af kennslu og vísindastörfum er æskileg

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.

Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.3 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.

Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:

  • Fyrri störf, menntun og hæfni

  • Félagsstörf og umsagnaraðila

Nauðsynleg fylgiskjöl:

  • Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum

  • Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu, gæðavinnu og stjórnunarstörfum

  • Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed

  • Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið

Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir

Tungumálahæfni: Íslenska 2/5, enska 4/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 26.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Guðrún Svanborg Hauksdóttir

Tölvupóstur: gusvhauk@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðilæknir á Sýkla- og veirufræðideild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

02.10.2026

Umsóknarfrestur

26.10.2026