Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Umsjónarmaður endurhæfingaraðstöðu og sundlaugar - HSN Sauðárkrókur

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

75%

Starf skráð

20.08.2026

Umsóknarfrestur

01.09.2026

Umsjónarmaður endurhæfingaraðstöðu og sundlaugar - HSN Sauðárkrókur

Heilbrigðisstofnun Norðurlands Sauðárkróki (HSN) leitar að þjónustulunduðum og ábyrgum einstaklingi til að sinna umsjón með sundlaug, æfingarsal og meðferðarrými sjúkraþjálfunar. Starfið býður upp á fjölbreytt verkefni, náin samskipti við skjólstæðinga og þátttöku í mikilvægu endurhæfingarstarfi. Starfshlutfall er 75% og æskilegt er að umsækjandi hefji störf sem fyrst eða eftir samkomulagi. Næsti yfirmaður umsjónarmanns er yfirhjúkrunarfræðingur svæðis, HSN Sauðárkróki.

Sauðárkrókur og Skagafjörður bjóða upp á framúrskarandi aðstæður til að samræma gefandi starf og gott líf utan vinnu, þar sem stutt er í náttúruna og samfélagið einkennist af samheldni, öflugu menningarlífi og fjölbreyttum tækifærum til afþreyingar.

Hér er að finna frekari upplýsingar um HSN á Sauðárkróki HSN á Sauðárkróki: Fagmennska, samvinna og virðing í fyrirrúmi

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Að aðstoða skjólstæðinga í endurhæfingu við æfingar og meðferð í sundlaug HSN Sauðárkróki

  • Að tryggja öryggi og vellíðan skjólstæðinga í og við sundlaug

  • Að sinna umsjón með sundlaug, búnings- og baðaðstöðu og tryggja gott hreinlæti og aðbúnað

  • Að aðstoða sjúkraþjálfara samkvæmt skipulagi endurhæfingardeildar

  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Skilyrði er að starfsmaður hafi lokið eða sé tilbúinn að sækja námskeið í skyndihjálp, og sundprófi sem sérstaklega er ætlað sundlaugavörðum

  • Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi er kostur

  • Áhugi á að vinna með fólki og styðja það á leið sinni til betri heilsu

  • Gott andlegt og líkamlegt atgervi

  • Jákvætt viðmót og rík þjónustulund

  • Frábær samskiptahæfni og lipurð í samskiptum

  • Samviskusemi, stundvísi og sjálfstæð vinnubrögð

  • Hreint sakavottorð

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kjölur hafa gert.

Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfatorg.is með því að smella á hlekkinn hér að neðan. Umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu leggur fyrir. Ekki er unnt að ráða fólk yngra en 18 ára.

HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntunar á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.

Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN

Gildi HSN eru: Fagmennska - samvinna - virðing.

Starfshlutfall er 75%

Umsóknarfrestur er til og með 01.09.2026

Nánari upplýsingar veitir

Fanney Ísfold Karlsdóttir

sjúkraþjálfari

Tölvupóstur: fanney.isfold.karlsdottir@hsn.is

Sími: 432 4292

Sigurbjörg Kristr Snjólfsdóttir

yfirhjúkrunarfræðingur svæðis

Tölvupóstur: sigurbjorg.kristrun.snjolfsdottir@hsn.is

Sími: 432 4220

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Umsjónarmaður endurhæfingaraðstöðu og sundlaugar - HSN Sauðárkrókur

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

75%

Starf skráð

20.08.2026

Umsóknarfrestur

01.09.2026