
Þjónustuaðili
Fjarskiptastofa
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í fjarskiptatækni og innviðum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
27.10.2026
Umsóknarfrestur
23.11.2026
Sérfræðingur í fjarskiptatækni og innviðum
Vilt þú móta framtíð fjarskipta á Íslandi?
Hvernig vitum við hvar fjarskiptaþjónusta er í boði og hversu vel hún virkar? Hvernig greinum við fjarskiptatruflanir og metum áfallaþol fjarskiptainnviða? Og hvernig undirbúum við fjarskiptakerfi Íslands fyrir nýja tækni og auknar kröfur um öryggi?
Fjarskiptastofa leitar að tæknisinnuðum, skipulögðum og lausnamiðuðum sérfræðingi á innviðasviði. Þú færð að vinna að fjölbreyttum og mikilvægum verkefnum sem tengjast fjarskiptainnviðum Íslands.
Starfið sameinar fjarskiptatækni, gagnagreiningu, verkefnastjórnun, mælingar, vettvangsvinnu og tæknilegt eftirlit. Verkefnin snúa meðal annars að rekstraröryggi, þróun og áfallaþoli fjarskiptainnviða.
Helstu verkefni og ábyrgð
Greining og úrvinnsla gagna um fjarskiptainnviði, útbreiðslu, þjónustugæði og uppbyggingu fjarskiptaneta.
Verkefnastjórnun og umsjón með verkefnum á sviði fjarskiptainnviða, mælinga og áfallaþols.
Þátttaka í tæknilegum mælingum, vettvangsathugunum og úrvinnslu mæligagna.
Þátttaka í verkefnum sem snúa að rekstraröryggi, áfallaþoli, gervihnattafjarskiptum og nýrri fjarskiptatækni.
Samskipti við fjarskiptafyrirtæki, stjórnvöld og aðra hagaðila ásamt þátttöku í innlendu og alþjóðlegu samstarfi.
Þátttaka í tæknilegu eftirliti, meðal annars skoðunum á fjarskipta- og radíóbúnaði skipa eftir því sem við á.
Hverjum erum við að leita að?
Við leitum að tæknisinnuðum og lausnamiðuðum einstaklingi sem er forvitinn um hvernig hlutirnir virka. Viðkomandi þarf að geta skipulagt og haldið utan um verkefni, unnið sjálfstætt, sýnt frumkvæði, greint vandamál og lagt til lausnir.
Starfið hentar fólki með fjölbreyttan tæknilegan bakgrunn, til dæmis á sviði fjarskipta, verkfræði, tæknifræði, upplýsingatækni, netkerfa eða rafeindatækni. Ekki er gerð krafa um sérhæfða reynslu af radíómælingum, tíðnimálum eða tæknilegu eftirliti; gert er ráð fyrir að viðkomandi geti byggt upp hluta þeirrar sérþekkingar í starfi.
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi, til dæmis á sviði fjarskipta, verkfræði, tæknifræði, upplýsingatækni, netkerfa eða rafeindatækni, eða sambærileg menntun. Viðamikil og viðeigandi starfsreynsla getur komið í stað formlegrar menntunar.
Góður tæknilegur grunnur, þekking á fjarskiptum, netkerfum eða skyldum tæknisviðum og hæfni til að tileinka sér nýja tækni og aðferðir.
Reynsla af gagnavinnslu og gagnagreiningu ásamt færni í Excel eða sambærilegum verkfærum.
Hæfni til að skipuleggja, leiða og fylgja verkefnum eftir. Reynsla af verkefnastjórnun eða verkefnaumsjón er kostur.
Góð greiningarhæfni, nákvæm og skipulögð vinnubrögð, frumkvæði og geta til að vinna sjálfstætt, leysa vandamál og koma niðurstöðum skýrt á framfæri.
Góð samskipta- og samstarfshæfni og geta til að vinna með ólíkum sérfræðingum og hagaðilum.
Góð færni í íslensku og ensku.
Almenn ökuréttindi eru skilyrði þar sem starfið getur falið í sér vettvangsferðir vegna mælinga, skoðana og annarra verkefna.
Það er kostur að hafa þekkingu á eða reynslu af
Radíókerfum, tíðnimálum, radíómælingum eða útbreiðslu radíómerkja.
Fjarskiptakerfum, farnetum eða rekstri fjarskiptainnviða.
GIS, kortagögnum eða landupplýsingakerfum.
Power BI eða sambærilegum verkfærum til greiningar og framsetningar gagna.
SQL, Python eða öðrum leiðum til sjálfvirkni og úrvinnslu gagna.
Fjarskipta- og radíóbúnaði skipa, vettvangsathugunum eða tæknilegu eftirliti.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Af hverju Fjarskiptastofa?
Fjarskipti eru meðal mikilvægustu innviða íslensks samfélags. Hjá Fjarskiptastofu færðu að vinna að fjölbreyttum og krefjandi verkefnum sem tengjast framtíð fjarskipta, öryggi og áfallaþoli.
Starfið býður upp á sjálfstæði og raunveruleg áhrif. Þú færð ekki aðeins að sinna skilgreindum verkefnum heldur færð einnig svigrúm til að móta framkvæmd þeirra og þróa nýjar lausnir og vinnuaðferðir.
Þú vinnur með íslenskum og erlendum sérfræðingum og færð tækifæri til starfsþróunar og sérhæfingar á sviði fjarskiptatækni og mikilvægra innviða.
Taktu þátt í að þróa og styrkja fjarskiptainnviði Íslands til framtíðar.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 23.11.2026
Nánari upplýsingar veitir
Ólafur Aðalsteinsson
Tölvupóstur: olafur@fjarskiptastofa.is

Þjónustuaðili
Fjarskiptastofa
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í fjarskiptatækni og innviðum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
27.10.2026
Umsóknarfrestur
23.11.2026