Þjónustuaðili
Náttúruverndarstofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í verkefninu Petland LIFEline
Staðsetning
Vesturland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
09.09.2026
Umsóknarfrestur
24.09.2026
Sérfræðingur í verkefninu Petland LIFEline
Náttúruverndarstofnun leitar að metnaðarfullum einstaklingi í tímamundið starf með framúrskarandi samskiptahæfni og með þekkingu á náttúruvernd til að leiða og samþætta verkefni sem stofnunin ber ábyrgð á í Petland LIFEline (Mýralíf). Starfið er fjölbreytt, krefjandi og gefandi og verður starfsmaðurinn hluti af samhentu teymi þar sem fagmennska og virðing fyrir náttúrunni eru í forgrunni.
Starfstöð sérfræðings er á Hvanneyri Borgarbyggð.
Helstu verkefni og ábyrgð
Verkefni á sviði Petland LIFE samstarfsverkefnisins
Gerð stjórnunar- og verndaráætlunar
Samskipti við stofnanir, sveitafélög, landeigendur og aðra hagsmunaaðila
Þátttaka í stefnumótun og þróun verkferla
Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
Framúrskarandi hæfni í samskiptum og þjónustulund
Góð skipulagshæfni og geta til að forgangsraða verkefnum
Gott frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Gott vald á íslensku og ensku
Góð almenn tölvukunnátta
Þekking á umhverfismálum og náttúruvernd
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Petland LIFEline er metnaðarfullt, fimm ára verkefni styrkt af LIFE- áætlun Evrópusambandsins. Markmið þess er að endurheimta láglendisfjallamýrar á Íslandi og efla getu stofnana til vendunnar lífræðilegs fjölbreytileika á endurheimtum votlendissvæðum. Verkefnið er samstarf sjö stofnana og félagasamtaka. Nánar um verekfnið á myralif.is
Um er að ræða tímabundið starf til eins árs með möguleika á framlengingu. Starfshlutfall er 100%.
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Vinsamlegast látið ferilskrá og kynningarbréf fylgja umsókninni þar sem færð eru rök fyrir hæfni í starfið. Við hvetjum áhugasöm til að sækja um óháð kyni og uppruna.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Um Náttúruverndarstofnun
Stofnunin hefur víðtækt hlutverk í náttúruvernd, sjálfbærri þróun og vernd friðlýstra svæða ásamt umsjón með villtum dýrum og veiðistjórnun. Markmið hennar er að tryggja að náttúra Íslands njóti verndar til framtíðar. Hjá Náttúruverndarstofnun starfar samheldinn hópur starfsmanna með fjölbreytta reynslu, sem sinnir margvíslegum verkefnum tengdum náttúruvernd og þjónustu við gesti þjóðgarða og annarra friðlýstra svæða. Starfsstöðvar stofnunarinnar eru 15 um allt land.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 24.09.2026
Nánari upplýsingar veitir
Hákon Ásgeirsson
Tölvupóstur: hakon.asgeirsson@nattura.is
Margrét Jóna Ísólfsdóttir
Tölvupóstur: margret.jona.isolfsdottir@nattura.is
Þjónustuaðili
Náttúruverndarstofnun
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í verkefninu Petland LIFEline
Staðsetning
Vesturland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
09.09.2026
Umsóknarfrestur
24.09.2026