
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á L5 Landakoti
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
60-100%
Starf skráð
01.09.2026
Umsóknarfrestur
15.09.2026
Hjúkrunarfræðingur á L5 Landakoti
Við sækjumst eftir hjúkrunarfræðingum sem hafa áhuga á öldrunarhjúkrun, umbótastarfi og þverfaglegu samstarfi. Starfið hentar vel þeim sem vilja vaxa í starfi, þróa faglega sýn í hlýlegu starfsumhverfi.
L5 er staðsett á Landakoti, í hjarta Reykjavíkur. Deildin er 9 rúma og er blönduð deild sem bæði líknardeild aldraðra sem sérhæfir sig í meðferð og hjúkrun sjúklinga sem eru 67 ára og eldri með langt gengna sjúkdóma, en einnig biðrými fyrir sjúklinga með gilt færni- og heilsumat sem bíða eftir vistun á hjúkrunarheimili.
Upphaf starfa og starfshlutfall er samkvæmt nánara samkomulagi. Áhugasömum er velkomið að hafa samband við Hjördísi Halldóru, deildarstjóra.
Vinnuvika starfsfólks í fullri vaktavinnu er 36 stundir og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.
Helstu verkefni og ábyrgð
Veita, skipuleggja og ákveða meðferð á hjúkrunarmeðferð í samráði við sjúklinga og aðstandendur þeirra
Stuðningur og ráðgjöf til sjúklinga og aðstandenda
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
Faglegur metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Hæfni og geta til að starfa í teymi
Áhugi á hjúkrun aldraðra
Góð íslenskukunnátta áskilin
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, Hjúkrun, endurhæfing, taugakerfið
Tungumálahæfni: Íslenska 4/5
Staðsetning: Túngötu, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 60-100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.09.2026
Nánari upplýsingar veitir
Hjördís Halldóra Sigurðardóttir
Tölvupóstur: hjorhall@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur á L5 Landakoti
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
60-100%
Starf skráð
01.09.2026
Umsóknarfrestur
15.09.2026