Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Hvammi - tímabundið starf

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

22.10.2026

Umsóknarfrestur

03.11.2026

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Hvammi - tímabundið starf

Heilsugæslan Hvammi auglýsir eftir hjúkrunarfræðingi í 80-100% tímabundið starf í eitt ár. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. janúar nk. eða eftir nánari samkomulagi.

Við leitum að hjúkrunarfræðingi sem eru tilbúinn að takast á við fjölbreytt, krefjandi og skemmtileg verkefni á spennandi vettvangi sem er í sífelldri þróun. Heilsugæslan Hvammi er staðsett rétt við Smáralindina, með gott aðgengi og stutt í helstu stofnbrautir. Góð samvinna er á milli fagstétta og öflug skemmtinefnd að störfum.

Mikil þróunarvinna er í gangi á stöðinni og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga. Nánari upplýsingar um starfsemi stöðvarinnar má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is).

Helstu verkefni og ábyrgð

Megin starfssvið mun vera opin móttaka og heilsuvernd aldraða ásamt því að sinna öðrum verkefnum sem upp kunna að koma í samstarfi við annað starfsfólk hverju sinni.

Opin móttaka skiptist í bókaða móttöku og símaráðgjöf ásamt því að svara Heilsuveruskilaboðum. Í móttöku greina hjúkrunarfræðingar margvíslegustu þarfir/vandamál skjólstæðinga, veita viðeigandi meðferð og/eða koma málum í góðan farveg.

Heilsuvernd aldraða felur í sér mat á heilsu aldraðra skjólstæðinga og þörf þeirra á þjónustu til að viðhalda sjálfsbjargargetu. Lögð er áhersla á einstaklingsmiðaða nálgun, stuðning við breytingar og raunhæfa markmiðasetningu.

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Reynsla af heilsugæsluhjúkrun kostur

  • Reynsla af fjölskylduhjúkrun kostur

  • Þekking á forvarnar- og heilsueflingarstarfi

  • Sjálfstæði í starfi, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð

  • Reynsla og áhugi á teymisvinnu

  • Mikil samskiptahæfni og sveigjanleiki

  • Íslenskukunnátta

  • Góð almenn tölvukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun og staðfest afrit af opinberu starfsleyfi. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Katli Berg Magnússyni, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt að óska eftir hreinu sakavottorði.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 03.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sólveig Unnur Eysteinsdóttir

Tölvupóstur: solveig.unnur.eysteinsdottir@heilsugaeslan.is

Sími: 513-5850

Þjónustuaðili

Heilsu­gæsla höfuð­borg­ar­svæð­isins

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Hvammi - tímabundið starf

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

22.10.2026

Umsóknarfrestur

03.11.2026