Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Upplýsingar um starf
Starf
Móttökuritari
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
25%
Starf skráð
24.08.2026
Umsóknarfrestur
07.09.2026
Móttökuritari
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða móttökuritara til starfa á heilsugæsluna í Reykjanesbæ.
Við leitum að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingi í starf móttökuritara. Um er að ræða 25% starf í vaktavinnu um helgar. Nauðsynlegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Á HSS er lögð áhersla á góða samvinnu, stuttar boðleiðir og góðan starfsanda.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn afgreiðsla
Símsvörun, bókanir og móttaka skjólstæðinga
Móttaka tímapantana í afgreiðslu
Uppgjör
Upplýsingagjöf og aðstoð við skjólstæðinga
Samvinna og aðstoð við aðrar deildir innan stofnunarinnar
Flokkun á pósti og rafrænum sendingum ásamt skönnun og frágangi gagna
Hæfniskröfur
Góð almenn tölvukunnátta
Reynsla af excel er kostur
Góð þjónustulund og samskiptahæfni
Skipulögð vinnubrögð
Starfsreynsla af sambærilegum störfum er nauðsynleg
Jákvætt og hlýtt viðmót
Góð íslenskukunnátta bæði í ræðu og riti
Góð enskukunnátta er skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Starfsmannafélag Suðurnesja hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað um leið og ráðið hefur verið í starfið. Umsókn gildir í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 25%
Umsóknarfrestur er til og með 07.09.2026
Nánari upplýsingar veitir
Eva Hlín Haraldsdóttir
Tölvupóstur: eva.h.haraldsdottir@hss.is
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Upplýsingar um starf
Starf
Móttökuritari
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
25%
Starf skráð
24.08.2026
Umsóknarfrestur
07.09.2026