Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Skrifstofumaður/ Teymisstjóri í ritaraþjónustu dag- og göngudeildar blóð- og krabbameinslækninga

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

24.09.2026

Umsóknarfrestur

05.10.2026

Skrifstofumaður/ Teymisstjóri í ritaraþjónustu dag- og göngudeildar blóð- og krabbameinslækninga

Dag- og göngudeild blóð- og krabbameinslækninga á Landspítala leitar eftir öflugum teymisstjóra í skrifstofuþjónustu/ móttöku. Teymisstjórinn ber ábyrgð á daglegum verkefnum einingarinnar í samræmi við stefnu og gildi Landspítala.

Starfið felst m.a. í að vinna að aukinni skilvirkni og öryggi í móttöku- og bókunarþjónustu dag- og göngudeildarinnar sem og öðrum þáttum í nánu samstarfi við deildarstjóra, yfirlækna og annað starfsfólk deildarinnar. Teymisstjóri mun sjá um daglegt skipulag og mönnun, tryggja þjálfun og bestu þekkingu til starfsins á hverjum tíma og vinna með sínu teymi að virkri framþróun þjónustu við ört vaxandi skjólstæðingahóp auk almennra starfa skrifstofumanns í móttöku.

Leitað er að einstaklingi með brennandi áhuga á að vinna með stjórnendum og starfsfólki að skilvirkni, framþróun og öryggi í þjónustu á Landspítala.Starfshlutfall er 100% og er starfið laust frá 15. október 2026 eða eftir nánari samkomulagi.

Næsti yfirmaður er deildarstjóri dag- og göngudeildar blóð- og krabbameinslækninga.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þátttaka í daglegum rekstri og skipulag verkefna í móttöku

  • Umsjón og eftirlit með bókunum sjúklinga

  • Skipulagning og samræming á tímabókunum

  • Tryggja góða nýtingu dag- og göngudeildaraðstöðu og innleiða hugbúnaðarlausnir því tengdu (stofusýn)

  • Kortlagning og skjalfesting á ferlum er varða bókun sjúklinga á dag- og göngudeild

  • Umsjón og eftirlit með mælikvörðum og gæðavísum sem þjónustan byggir á

  • Almenn og sérhæfð ritarastörf í móttöku á deild

  • Náið samstarf við stjórnendur, gæðastjóra og verkefnastjóra sviðs við uppbyggingu gæðakerfis og skjalfestingu verklags í gæðahandbók Landspítala

  • Náið samstarf við aðra teymisstjóra skrifstofuþjónustu innan krabbameinsþjónustu með samræmingu verklags að leiðarljósi

  • Önnur tilfallandi verkefni í samráði við yfirmann

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi s.s. heilbrigðisgagnafræði er kostur

  • Þekking og reynsla af skrifstofustörfum og/ eða starfsemi sjúkrahúsþjónustu er kostur

  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar

  • Sýnir fagmennsku, umhyggju og virðingu í samskiptum

  • Hæfni til að miðla upplýsingum til ólíkra hópa

  • Sjálfstæð, skipulögð og öguð vinnubrögð og geta til að vinna undir álagi

  • Hæfileiki til að tileinka sér nýjungar

  • Góð tölvufærni og áhugi á tækniþróun

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, heilbrigðisgagnafræðingur, ritari, móttaka, skrifstofustörf

Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 3/5

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 05.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Þórunn Sævarsdóttir

deildarstjóri

Tölvupóstur: torunnsa@landspitali.is

Sími: 825-3523

Halldóra Hálfdánardóttir

forstöðuhjúkrunarfræðingur

Tölvupóstur: hallhalf@landspitali.is

Sími: 698 1347

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Skrifstofumaður/ Teymisstjóri í ritaraþjónustu dag- og göngudeildar blóð- og krabbameinslækninga

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

24.09.2026

Umsóknarfrestur

05.10.2026