
Þjónustuaðili
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
Upplýsingar um starf
Starf
FB auglýsir eftir kennurum í rafvirkjun og rafeindavirkjun
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
30.10.2026
Umsóknarfrestur
16.11.2026
FB auglýsir eftir kennurum í rafvirkjun og rafeindavirkjun
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti óskar eftir að ráða tvo kennara: kennara í rafvirkjun og kennara í rafeindavirkjun.
Ráðið er í störfin frá 1. janúar 2027. Á næsta ári hefst kennsla í nýrri og stórbættri verknámsaðstöðu FB, þar sem verknámsrými skólans meira en tvöfaldast og rafvirkjun fær meðal annars nýjan sal fyrir verklega kennslu. Þetta er því einstakt tækifæri til að taka þátt í uppbyggingu öflugs rafiðnaðarnáms frá fyrsta degi í nýju húsnæði
Staða Starfshlutfall
Kennari í rafvirkjun 100%
Kennari í rafeindavirkjun 100%
Helstu verkefni og ábyrgð
Kennsla, undirbúningur og námsmat í rafvirkjun annars vegar og rafeindavirkjun hins vegar, bæði í bóklegum og verklegum greinum.
Gerð kennsluáætlana og prófa.
Faglegt samstarf innan brautar og þvert á greinar skólans.
Þátttaka í þróun náms og kennslu í nýrri verknámsaðstöðu.
Skólinn notar Innu, upplýsinga- og námsumsjónarkerfi, og Teams hópvinnukerfi sem kennari þarf að vera tilbúinn að vinna með.
Hæfniskröfur
Meistarabréf í rafvirkjun (staða 1) eða rafeindavirkjun (staða 2) áskilið, eða sambærilegt nám sem nýtist í starfi. Kennsluréttindi eru æskileg.
Kennsluhæfni og góðir samskiptahæfileikar í faglegu og þverfaglegu samstarfi.
Frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð, áhugi og áreiðanleiki.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.
Tekið er mið af jafnréttisáætlun FB við ráðningar og eru öll sem uppfylla hæfniskröfur hvött til að sækja um. Jafnréttisáætlun skólans á að stuðla að jafnri stöðu og virðingu innan skólans, þannig að starfsfólk og nemendur fái notið sín óháð kyni, aldri, kynþætti, kynhneigð, fötlun, þjóðerni, trúar- eða stjórnmálaskoðunum.
Við ráðningu skulu liggja fyrir afrit prófskírteina, leyfisbréf sem veitir rétt til að nota starfsheitið kennari, sbr. lög nr. 95/2019, og sakavottorð.
Um skólann
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti býður verknám, listnám og bóknám til lokaprófs úr framhaldsskóla. FB er skóli Heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Sýn okkar er að efla fólk til að skapa kærleiksríkt og sjálfbært samfélag, og gildi skólans eru virðing, fjölbreytni og sköpunarkraftur.
Stefnumið skólans eru að við:
leggjum áherslu á frið, lýðræði, réttlæti, jöfnuð og jafnrétti
vinnum saman að góðum námsárangri allra nemenda
menntum nemendur til að stuðla að sjálfbærni og virða líf og umhverfi
stuðlum að vellíðan og valdeflingu nemenda og starfsfólks
leggjum áherslu á góða samvinnu og hvetjandi, nærandi samskipti
iðkum, kennum og hlúum að nýsköpun
ræktum góð tengsl út á við og vinnum með nærsamfélagi skólans.
Nánar um skólann á www.fb.is.
Umsókn
Umsóknir skulu berast rafrænt í gegnum ráðningarkerfi Oracle, sjá tengil hér að neðan. Vinsamlegast takið fram í umsókn hvorri stöðunni er sótt um, eða hvort sótt er um báðar.
Öllum umsækjendum verður svarað og þeim tilkynnt um ráðstöfun starfanna þegar ákvörðun liggur fyrir. Afrit af umsóknargögnum verður varðveitt í samræmi við lög um Þjóðskjalasafn Íslands nr. 66/1985. Áskilinn er réttur til að nýta auglýsinguna í 6 mánuði frá ráðningu.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.11.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
Upplýsingar um starf
Starf
FB auglýsir eftir kennurum í rafvirkjun og rafeindavirkjun
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
30.10.2026
Umsóknarfrestur
16.11.2026