Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraliði á almenna endurhæfingardeild aldraðra L2

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

60-100%

Starf skráð

23.10.2026

Umsóknarfrestur

09.11.2026

Sjúkraliði á almenna endurhæfingardeild aldraðra L2

Við leitum eftir jákvæðum og lífsglöðum sjúkraliða sem hefur áhuga á hjúkrun aldraðra og þverfaglegri teymisvinnu. Almenn endurhæfingardeild aldraðra er endurhæfingardeild fyrir sjúklinga í kjölfar bráðra veikinda þar sem markmiði er að bæta hreyfigetur sjúklinga og færni til að vera sjálfbjarga í daglegu lífi.

Leitað er eftir öflugum sjúkraliða sem getur verið leiðandi í faglegu starfi á deildinni, tekið þátt í gæða- og umbótaverkefnum, tekið að sér að vera með nema og fleiri spennandi verkefni.

Almenn endurhæfingardeild L2 er á Landakot sem er staðsett í rólegu og rótgrónu hverfi miðsvæðis í Reykjavík og er andinn í húsinu einstakur.

Starfshlutfall getur verið 60-100% og er starfið laust nú þegar eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Móttaka og kennsla sjúkraliðanema

  • Móttaka, fræðsla og aðlögun nýs starfsfólks í umönnun

  • Hjúkrun sjúklinga í samvinnu við aðra fagaðila

  • Virk þátttaka í fjölskylduhjúkrun

  • Virk þátttaka við endurhæfingu sjúklinga

  • Virk þátttaka í gæða- og umbótavinnu á deildinni

Hæfniskröfur

  • Íslenskt starfsleyfi sjúkraliða

  • Jákvætt viðmót og góð samskiptahæfni

  • Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi

  • Áhugi á hjúkrun aldraðra

  • Góð íslenskukunnátta áskilin

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sjúkraliði, hjúkrun, teymisvinna, fræðsla

Tungumálahæfni: íslenska 3/5

Staðsetning: Túngötu, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 60-100%

Umsóknarfrestur er til og með 09.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Heiða Björk Gunnlaugsdóttir

Deildarstjóri

Tölvupóstur: heidag@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraliði á almenna endurhæfingardeild aldraðra L2

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

60-100%

Starf skráð

23.10.2026

Umsóknarfrestur

09.11.2026