Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á erfða- og sameindalæknisfræðideild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

02.11.2026

Umsóknarfrestur

13.11.2026

Hjúkrunarfræðingur á erfða- og sameindalæknisfræðideild

Við leitum eftir jákvæðum, sjálfstæðum og metnaðarfullum hjúkrunarfræðingi til starfa á erfða- og sameindalæknisfræðideild (ESD) Landspítala.

Á deildinni starfa um 50 manns í öflugu þverfaglegu teymi. ESD veitir alhliða erfðaheilbrigðisþjónustu og er eina deild sinnar tegundar á Íslandi. Deildin heyrir undir rannsóknarþjónustu og sinnir greiningum, vísindarannsóknum, ráðgjöf og kennslu heilbrigðisstétta í faginu.

Vinnuandinn einkennist af samvinnu, lipurð, stuðningi og metnaði. Vinnutími er frá kl. 8-16, virka daga og æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.

Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir sem styður við betra jafnvægi milli vinnu og einkalífs.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þátttaka í göngudeildarstarfi með læknum deildar og/ eða undir handleiðslu þeirra

  • Skipulagning og þátttaka í eftirliti einstaklinga með arfgeng krabbameinsheilkenni og ýmsa sjaldgæfa sjúkdóma

  • Eftirfylgd rannsókna og miðlun svara í vissum tilfellum

  • Svara almennum fyrirspurnum ráðþega í ákveðnum eftirfylgdarhópum

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi

  • Fagmennska, nákvæmni og vilji til að tileinka sér nýjungar

  • Gott viðmót, jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum

  • Hæfni og geta til að starfa sjálfstætt og í teymi

  • Góð tölvukunnátta

  • Góð íslenskukunnátta skilyrði

  • Áhugi og reynsla af störfum tengdum erfðafræði, sjaldgæfum sjúkdómum og krabbameinslækningum er kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, rannsóknir, heilbrigðisvísindi

Tungumálahæfni: Íslenska 4/5, enska 3/5

Staðsetning: Skógarhlíð 12, 105 Reykjavík / Eggertsgata, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 13.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sigrún Hallgrímsdóttir

Tölvupóstur: sigrunha@landspitali.is

Sími: 825-5131

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Hjúkrunarfræðingur á erfða- og sameindalæknisfræðideild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

02.11.2026

Umsóknarfrestur

13.11.2026