Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Forstöðulæknir fæðinga- og kvensjúkdómalækninga við Sjúkrahúsið á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
27.10.2026
Umsóknarfrestur
06.11.2026
Forstöðulæknir fæðinga- og kvensjúkdómalækninga við Sjúkrahúsið á Akureyri
Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) leitar að öflugum og framsýnum forstöðulækni fæðinga- og kvensjúkdómalækninga. Um er að ræða 100% stöðu. Þetta er einstakt tækifæri fyrir reyndan sérfræðilækni til þess að hafa áhrif, leiða faglegt starf og stuðla að umbótum í heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni.
Leitað er að einstaklingi með leiðtogahæfni sem getur veitt faglega forystu, samhæft ólíka þætti starfseminnar og stuðlað að stöðugum umbótum í verklagi. Auk þess að byggja upp og þróa fæðinga- og kvensjúkdómalækningar, gegnir forstöðulæknir mikilvægu hlutverki í kennslu og vísindastarfi.
Skilyrði er að viðkomandi hafi fasta búsetu á Akureyri.
Hefur þú áhuga á að vera lykilmaður í framtíð fæðinga- og kvensjúkdómalækninga á landsbyggðinni?
Staðan veitist frá 1. desember n.k. eða eftir nánara samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Veita faglega forystu og leiða þróun fæðinga- og kvensjúkdómalækninga
Ábyrgð á faglegu starfi og stuðla að umbótum
Styðja og leiða starfsfólk í krefjandi og spennandi starfsumhverfi
Tryggja gæði þjónustu og stuðla að ölfugri kennslu og vísindastarfi starfseiningarinnar
Forstöðulæknir er leiðtogi og hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi, þ.e.a.s. faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og rekstrarábyrgð
Hæfniskröfur
Íslenskt lækningaleyfi og fullgild sérfræðiréttindi í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum
Fagleg reynsla, fræðileg þekking og reynsla af kennslu
Leiðtogahæfileikar og geta til að sjá tækifæri til umbóta og leiða umbótastarf og breytingar
Jákvætt viðmót, hæfileikar á sviði stjórnunar og kennslu og samskiptahæfni
Vera drífandi og tilbúinn að skapa jákvætt og kraftmikið starfsumhverfi
Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi
Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í mæltu og rituðu máli
Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Við hvetjum fólk af öllum kynjum til þess að sækja um starfið. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 06.11.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Sjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsingar um starf
Starf
Forstöðulæknir fæðinga- og kvensjúkdómalækninga við Sjúkrahúsið á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
27.10.2026
Umsóknarfrestur
06.11.2026