Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Náttúru­vernd­ar­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Yfirlandvörður á Suður- og Suðvesturlandi

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

27.10.2026

Umsóknarfrestur

10.11.2026

Yfirlandvörður á Suður- og Suðvesturlandi

Náttúruverndarstofnun auglýsir starf yfirlandvarðar laust til umsóknar á Suður- og Suðvesturlandi með sérstaka áherslu á Friðland að Fjallabaki, Dyrhólaey og Þjórsárdal.Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf í einstakri náttúru. Staða yfirlandvarðar er heilsársstaða og heyrir undir umdæmisstjóra á svæðinu. Um er að ræða vaktavinnu út á svæðum í tengslum við meginstarfsstöð á Hvolsvelli. Starfshlutfall er 100%.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ber ábyrgð á daglegri verkstjórn landvarða og hefur yfirsýn yfir stöðu verkefna

  • Annast þjálfun og móttöku landvarða

  • Sinnir almennri landvörslu eftir þörfum

  • Fræðsla og upplýsingagjöf á svæðinu

  • Vinnur að öryggismálum

  • Eftirlit með náttúru og innviðum ásamt viðhaldi á innviðum

  • Þjónusta og upplýsingagjöf til ferðafólks í samvinnu við aðra landverði

Hæfniskröfur

  • Landvarðaréttindi

  • Mjög góð samskipta- og samstarfsfærni

  • Geta til að þróa hugmyndir og verklag

  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi

  • Áhugi og þekking á náttúruvernd og umhverfismálum

  • Færni í miðlun upplýsinga

  • Gott vald á íslensku og ensku. Frekari tungumálakunnátta er kostur

  • Almenn ökuréttindi

  • Reynsla af akstri breyttra jeppa og vinnuvéla er kostur

  • Verkþekking er kostur

  • Störf á friðlýstum svæðum og starf við leiðsögn, reynsla af útivist og fjallamennsku er kostur

  • Þekking á viðkomandi starfssvæði er kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Vinsamlegast látið ferliskrá og kynningarbréf þar sem færð eru rök fyrir hæfni í starfið fylgja með umsókninni.Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.Við hvetjum áhugasöm til að sækja um óháð kyni og uppruna. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu verður tekin.

Um Náttúruverndarstofnun:Stofnunin hefur víðtækt hlutverk í náttúruvernd, sjálfbærri þróun og vernd friðlýstra svæða ásamt umsjón með villtum dýrum og veiðistjórnun. Markmið hennar er að tryggja að náttúra Íslands njóti verndar til framtíðar. Hjá Náttúruverndarstofnun starfar samheldinn hópur starfsfólks með fjölbreytta reynslu, sem sinnir margvíslegum verkefnum tengdum náttúruvernd og þjónustu við gesti þjóðgarða og annarra friðlýstra svæða. Starfsstöðvar stofnunarinnar eru 16 talsins um allt land.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 10.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Jón Guðmundur Valgeirsson

Umdæmisstjóri

Tölvupóstur: jon.valgeirsson@nattura.is

Margrét Jóna Ísólfsdóttir

Mannauðsstjóri

Tölvupóstur: margret.jona.isolfsdottir@nattura.is

Þjónustuaðili

Náttúru­vernd­ar­stofnun

Upplýsingar um starf

Starf

Yfirlandvörður á Suður- og Suðvesturlandi

Staðsetning

Suðurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

27.10.2026

Umsóknarfrestur

10.11.2026