
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Innköllunarstjóri - Dagdeild BH
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
60-80%
Starf skráð
31.08.2026
Umsóknarfrestur
10.09.2026
Innköllunarstjóri - Dagdeild BH
Langar þig að starfa við mikilvægt og gefandi starf þar sem skipulag, fagmennska og samskipti skipta sköpum fyrir upplifun barna og fjölskyldna þeirra?
Við leitum að metnaðarfullum og jákvæðum hjúkrunarfræðingi til starfa sem innköllunarstjóri á dagdeild Barnaspítala Hringsins. Um er að ræða fjölbreytt starf þar sem þú gegnir mikilvægu hlutverki í undirbúningi barna og fjölskyldna þeirra fyrir aðgerðir og rannsóknir, í nánu samstarfi við lækna og annað heilbrigðisstarfsfólk.
Starfið er laust frá 1. desember 2026 eða eftir samkomulagi og er starfshlutfall 60-80%.
Á Barnaspítala Hringsins starfar öflugt og samheldið teymi sem hefur það að markmiði að veita börnum og fjölskyldum þeirra framúrskarandi þjónustu í öruggu og hlýlegu umhverfi. Við erum leiðandi í sérhæfðri heilbrigðisþjónustu fyrir börn og unglinga á Íslandi. Hér gefst tækifæri til að starfa með framúrskarandi fagfólki í krefjandi, skemmtilegu og þroskandi starfsumhverfi þar sem velferð barna og fjölskyldna þeirra er ávallt í forgangi.
Vinnuvika starfsfólks í fullri dagvinnu er 36 stundir sem styður við betra jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
Helstu verkefni og ábyrgð
Umsjón með innköllun og undirbúningi sjúklinga fyrir aðgerðir og inngrip
Skipulagning og samræming aðgerðadagskrár í samstarfi við fagfólk deildarinnar
Yfirumsjón með biðlistum og eftirfylgni með ferli sjúklinga
Þátttaka í gæðastarfi og þróun fræðsluefnis fyrir sjúklinga og aðstandendur
Önnur verkefni sem tengjast starfsemi dagdeildar
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Áhugi á barnahjúkrun, reynsla á því sviði er kostur
Faglegur metnaður og sjálfstæði í starfi
Skipulagshæfni og lausnamiðuð hugsun
Góð samskiptahæfni og þjónustulund
Hæfni og geta til að starfa í þverfaglegu teymi
Áhugi á gæðastarfi og þróun þjónustu
Góð tölvukunnátta, þekking á kerfum Landspítala er kostur
Góð íslensku- og enskukunnátta
Hreint sakavottorð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og viðtölum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Umsækjendur skulu framvísa nýju sakavottorði áður en til ráðningar getur komið, sbr. meginreglur laga um barnavernd sem m.a. koma fram í 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2002.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, hjúkrunarfræðingur, hjúkrun
Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5
Starfshlutfall er 60-80%
Umsóknarfrestur er til og með 10.09.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Innköllunarstjóri - Dagdeild BH
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
60-80%
Starf skráð
31.08.2026
Umsóknarfrestur
10.09.2026