Þjónustuaðili
Vegagerðin
Upplýsingar um starf
Starf
Umsjónarmaður véla og tækja
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
04.11.2026
Umsóknarfrestur
16.11.2026
Umsjónarmaður véla og tækja
Við leitum að fjölhæfum einstaklingi til að bætast í hópinn hjá véla og tækjateyminu á rekstrardeild Vegagerðarinnar.
Á rekstrardeild starfa um 14 manns og þar af þrír í vélum og tækjum. Rekstrardeild er þjónustudeild þar sem mikið er lagt upp úr góðri liðsheild, ríkri þjónustulund og lausnamiðaðri nálgun. Deildin þjónustar verkstæði Vegagerðarinnar um allt land, ásamt fasteignum, vöruinnkaupum og birgðastýringu. Vegagerðin er með 18 starfsstöðvar, starfsemi rekstrardeildar er í Garðabæ.
Helstu verkefni og ábyrgð
Útvega varahluti í vélar og tæki, í samráði við verkstæðisformenn og yfirverkstjóra á þjónustustöðvum.
Ráðgjöf og fræðsla um umhirðu og notkun tækjabúnaðar Vegagerðarinnar.
Eftirlit með notkun og viðhaldi tækjabúnaðar Vegagerðarinnar.
Aðstoð við gerð viðhaldsáætlana fyrir tækjabúnað.
Ástandsskoðun á vélum og tækjum á starfsstöðvum Vegagerðarinnar.
Almenn verkefni tengd rekstri véla og tækja.
Hæfniskröfur
Þekking á vélum og tækjabúnaði, einkum þeim er varða vegaþjónustu s.s. vegheflum, dreifurum, snjótönnum ásamt vökvakerfum og varahlutum er æskileg.
Sveinspróf í vélvirkjun, bifvélavirkjun, eða sambærileg menntun er kostur.
Mikil samskiptafærni, lausnamiðuð nálgun, hæfni til að vinna sjálfstætt og í hóp.
Almenn ökuréttindi, C- og E-réttindi eru kostur.
Hæfni til að nota tölvur og stafrænar lausnir í starf.
Gott vald á íslensku og ensku.
Góð öryggisvitund.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. Í umsókninni komi fram upplýsingar um fyrri störf og þær hæfnikröfur sem óskað er eftir, auk afrita af prófskírteinum og ökuréttindum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru. Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi. Um 370 starfsmenn Vegagerðarinnar starfa á 18 starfsstöðvum víðsvegar um landið.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 16.11.2026
Nánari upplýsingar veitir
Hrafnhildur Jónsdóttir
forstöðumaður rekstardeildar
Tölvupóstur: hrafnhildur.jonsdottir@vegagerdin.is
Sími: 5221000
Þjónustuaðili
Vegagerðin
Upplýsingar um starf
Starf
Umsjónarmaður véla og tækja
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
04.11.2026
Umsóknarfrestur
16.11.2026