Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Vestur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sálfræðingur í geðheilsuteymi Heilbrigðisstofnunar Vesturlands

Staðsetning

Vesturland

Starfshlutfall

60%

Starf skráð

25.08.2026

Umsóknarfrestur

07.09.2026

Sálfræðingur í geðheilsuteymi Heilbrigðisstofnunar Vesturlands

Heilbrigðisstofnun Vesturlands auglýsir eftir sálfræðingi í geðheilsuteymi fullorðinna á Vesturlandi. Um er að ræða 50-60% stöðu eða eftir nánara samkomulagi.

Starfsstöð er á Akranesi eða umsemjanleg á öðrum starfsstöðvum HVE.

Starfið felst í sálfræðimeðferð fullorðinna í geðheilsuteymi Heilbrigðisstofnunar Vesturlands í samstarfi við aðrar stéttir innan teymisins.

Helstu verkefni og ábyrgð

· Sálfræðiþjónusta fyrir einstaklinga 18 ára og eldri

· Greining, mat og meðferð á geðrænum vanda, gagnreynd sálfræðimeðferð og ráðgjöf

· Fræðsla og stuðningur við einstaklinga og aðstandendur

· Þátttaka í uppbyggingu geðheilsuteymis

· Vinna í þverfaglegu teymi

· Samstarf við aðrar heilbrigðisstofnanir s.s. Landspítala og félagsþjónustu

· Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

· Starfsleyfi frá landlækni Íslands er skilyrði

· Reynsla og þekking af greiningu og meðferð vegna geðraskana er skilyrði

· Ökuréttindi

· Góð íslenskukunnátta er skilyrði

· Reynsla af teymisvinnu

· Framúrskarandi samskiptahæfni og sveigjanleiki í starfi

· Frumkvæði, áhugi og metnaður til að ná árangri

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.

Ef engin umsókn er fullnægjandi áskilur HVE sér rétt til þess að hafna öllum umsóknum.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Umsóknum skulu fylgja leyfisbréf, ítarlegar starfsferilskrár, nöfn meðmælanda og persónulegt kynningarbréf.

Sótt er um á www.hve.is, og eða <www.starfatorg.is>

Starfshlutfall er 60%

Umsóknarfrestur er til og með 07.09.2026

Nánari upplýsingar veitir

Íris Björg Jónsdóttir

Tölvupóstur: iris.jonsdottir@hve.is

Sími: 432-1000

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Vestur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sálfræðingur í geðheilsuteymi Heilbrigðisstofnunar Vesturlands

Staðsetning

Vesturland

Starfshlutfall

60%

Starf skráð

25.08.2026

Umsóknarfrestur

07.09.2026