Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Skatt­urinn

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðistarf á þjónustusviði, Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

09.09.2026

Umsóknarfrestur

21.09.2026

Sérfræðistarf á þjónustusviði, Akureyri

Skatturinn leitar eftir háskólamenntuðum einstaklingi, með brennandi áhuga á að veita úrvals þjónustu, til þess að ganga til liðs við framsækið starfsfólk á starfsstöð Skattsins á Akureyri. Á starfsstöðinni starfar nú á fjórða tug starfsfólks sem vinnur eftir gildum Skattsins, sem eru fagmennska, framsækni og samvinna.

Helstu verkefni og ábyrgð

Um fjölbreytt verkefni er að ræða sem tengjast þjónustu við viðskiptavini og varða m.a. upplýsingagjöf um skatta-, innheimtu- og tollamál, úrvinnslu ýmissa gagna og afgreiðslu erinda sem tengjast verkefnum Skattsins.

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi (að lágmarki bakkalár gráða)

  • Fáguð framkoma og góð samskiptafærni, ásamt ríkri þjónustulund

  • Gott vald á íslensku og ensku, í töluðu og rituðu máli

  • Góð almenn tölvukunnátta

  • Þekking á almennri skattframkvæmd er kostur

  • Skipulögð, nákvæm og sjálfstæð vinnubrögð

  • Jákvæðni, frumkvæði og metnaður

  • Hreint sakavottorð

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Til þess að umsókn teljist fullnægjandi þarf ferilskrá, auk kynningarbréfs, sem inniheldur ítarlegar upplýsingar m.a. um menntun, fyrri störf, umsagnaraðila og annað er máli skiptir að fylgja með. Umsækjendum um störf hjá Skattinum kann að vera gert að leysa verkefni í ráðningarferlinu sem kæmu, auk annarra þátta, heildstætt inn í mat á hæfni þeirra til viðkomandi starfa.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun hefur verið tekin um ráðningar. Umsóknir geta gilt í allt að 6 mánuði frá því að umsóknarfresti lýkur.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 21.09.2026

Nánari upplýsingar veitir

Fanney Steinsdóttir

deildarstjóri

Tölvupóstur: fanney.steinsdottir@skatturinn.is

Sími: 442 1000

Þjónustuaðili

Skatt­urinn

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðistarf á þjónustusviði, Akureyri

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

09.09.2026

Umsóknarfrestur

21.09.2026