
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Tanntæknir í Tannlæknadeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
85%
Starf skráð
09.11.2026
Umsóknarfrestur
19.11.2026
Tanntæknir í Tannlæknadeild
Laust er til umsóknar 85% starf tanntæknis á aðgerðarstofu Tannlæknadeildar Háskóla Íslands. Vinnutíminn er breytilegur og fer eftir árstíðabundnu álagi í tengslum við kennslu í deildinni. Starfshlutfall á ársgrundvelli er 85%, 100% á kennslutíma og lægra hlutfall utan hans. Kennslutímabilið er að jafnaði frá miðjum ágúst til loka nóvember á haustmisseri og frá byrjun janúar til loka apríl á vormisseri. Vinnutími og endanlegt starfshlutfall verður skipulagt í samráði við þann sem er ráðinn.
Tannlæknastofa Tannlæknadeildar (klíníkin) veitir almenningi, nemendum og kennurum bæði almenna og sérhæfða þjónustu. Tannlæknastofan er kennslustofnun líkt og spítalar eru fyrir verklegt nám annarra heilbrigðisstétta. Í samstarfi við Fjölbrautarskólann í Ármúla fer einnig fram kennsla í tanntækni, einni af stoðgreinum tannlækninga.
Helstu verkefni og ábyrgð
Undirbúningur fyrir verklega kennslu og aðstoð á aðgerðastofu
Þjónusta og samskipti við nemendur og starfsfólk deildar
Stuðningur við klíníska kennslu
Vinna við sótthreinsun
Rafræn skráning sjúkragagna og röntgenmyndatökur
Umsjón að hluta til með skurðstofu
Móttaka og símsvörun
Hæfniskröfur
Tanntæknamenntun frá námsbraut tanntækna er æskileg
Reynsla af sambærilegum verkefnum er æskileg
Góð færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
Frumkvæði, metnaður og nákvæmni í starfi
Góð almenn tölvukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Ferilskrá
Kynningarbréf þar sem fjallað um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins
Afrit af prófskírteinum
Upplýsingar um tvo umsagnaraðila
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir í grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.
Starfshlutfall er 85%
Umsóknarfrestur er til og með 19.11.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Tanntæknir í Tannlæknadeild
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
85%
Starf skráð
09.11.2026
Umsóknarfrestur
19.11.2026