Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Atvinnu­vega­ráðu­neytið

Upplýsingar um starf

Starf

Ertu til í fjölbreytt verkefni á líflegum vinnustað?

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

29.10.2026

Umsóknarfrestur

16.11.2026

Ertu til í fjölbreytt verkefni á líflegum vinnustað?

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar starf stjórnarráðsfulltrúa á skrifstofu fjármála og innri þjónustu. Um er að ræða fjölbreytt starf í krefjandi og skemmtilegu starfsumhverfi.

Atvinnuvegaráðuneytið fer með málefni á sviði sjávarútvegs, landbúnaðar, lagareldis, matvæla og matvælaöryggis, viðskipta, iðnaðar, neytenda- og ferðamála.

Á skrifstofu fjármála og innri þjónustu eru verkefni sem varða meðal annars fjármál málefnasviða, rekstur ráðuneytisins, mannauðsmál, miðlun upplýsinga, stafræna þróun, skjala- og gæðamál. Skrifstofan veitir auk þess fagskrifstofum ráðuneytisins stoðþjónustu.

Við leitum að jákvæðum og lausnamiðuðum einstaklingi sem hefur ánægju af því veita samstarfsfólki og hagaðilum ráðuneytisins góða þjónustu og stuðning við ýmis verkefni sem heyra undir skrifstofu fjármála og innri þjónustu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skráning, afgreiðsla og úrvinnsla erinda

  • Umsýsla skjala, frágangur og aðstoð við skjalastjórnun

  • Þátttaka í fræðslu og ráðgjöf til starfsfólks m.a. vegna skjalamála

  • Almenn skrifstofustörf og þjónusta

  • Móttaka gesta og aðstoð vegna funda og viðburða

  • Aðkoma að öðrum verkefnum skrifstofunnar eftir þörfum

Hæfniskröfur

  • Viðeigandi hagnýt menntun sem nýtist í starfi.

  • Þekking og reynsla af skjalavörslu og skjalamálum er kostur.

  • Þekking á GoPro skjalavistunarkerfi er kostur.

  • Mjög góð samskiptafærni, sveigjanleiki og framúrskarandi þjónustulund.

  • Góð tölvufærni og þekking á Microsoft Office 365.

  • Stundvísi og sjálfstæð vinnubrögð.

  • Áhugi á nýtingu gervigreindar og stafrænum lausnum er kostur.

  • Frumkvæði, drifkraftur og jákvæðni.

  • Gott vald á íslensku og ensku.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn skal fylgja starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur.

Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Athygli er vakin á að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Áhugasamir einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 16.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Anna María Urbancic

skrifstofustjóri

Tölvupóstur: anna.maria.urbancic@atrn.is

Bryndís Guðrún Knútsdóttir

mannauðsstjóri

Tölvupóstur: bryndis.gudrun.knutsdottir@atrn.is

Þjónustuaðili

Atvinnu­vega­ráðu­neytið

Upplýsingar um starf

Starf

Ertu til í fjölbreytt verkefni á líflegum vinnustað?

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

29.10.2026

Umsóknarfrestur

16.11.2026