Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Fjarskipta­stofa

Upplýsingar um starf

Starf

Tímabundið starf lögfræðings á netöryggissviði Fjarskiptastofu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

26.10.2026

Umsóknarfrestur

05.11.2026

Tímabundið starf lögfræðings á netöryggissviði Fjarskiptastofu

Fjarskiptastofa gegnir veigamiklu hlutverki á sviði netöryggis hér á landi og er ætlað að stuðla að öryggi almennings, fyrirtækja og samfélagsins alls á sviði fjarskipta- og netöryggis. Þá skal stofnunin horfa til almannahagsmuna og þjóðaröryggis við framkvæmd eftirlits síns á þessu sviði.

Fjarskiptastofa leitar að lögfræðingi í tímabundna stöðu á netöryggissvið stofnunarinnar frá 1. janúar 2027 til 1. október 2027. Um er að ræða spennandi starf í nýjum og vaxandi málaflokki innan stofnunarinnar á sviði eftirlits með netöryggi fjarskiptafyrirtækja og mikilvægra innviða hér á landi. Starfið heyrir undir sviðsstjóra.

Helstu verkefni og ábyrgð

Mat á lagalegri hlítni mikilvægra innviða og fjarskiptafélaga við lágmarkskröfur laga á sviði netöryggis með öðrum sérfræðingum sviðsins.

Stjórnsýsluskoðanir á atvikum á sviði netöryggis og/eða netárása hjá fjarskiptafyrirtækjum og mikilvægum innviðum.

Aðkoma að gerð reglugerða og lagafrumvarpa á sviði netöryggis, þ.m.t. er varðar innleiðingu á nýju Evrópuregluverki á þessu sviði.

Þátttaka í innlendu og alþjóðlegu samstarfi á sviði net- og upplýsingaöryggis eftir því sem við á.

Hæfniskröfur

Meistarapróf í lögfræði er skilyrði.

Þekking og/eða reynsla á sviði stjórnsýsluréttar er æskileg.

Þekking og/eða reynsla á sviði netöryggis er kostur.

Áhugi á þróun lagaumhverfis á sviði netöryggis er kostur.

Samstarfs- og samskiptahæfileikar, jákvæðni, framsækni og heilindi.

Góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélag lögfræðinga hafa gert.

Umsóknarfrestur um starfið er til og með 5. nóvember 2026.

Sótt er um starfið á www.starfatorg.is

Um er að ræða 100% starf frá 1. janúar til 1. október 2027. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra við viðkomandi stéttarfélag.

Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.

Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og settur fram rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu. Umsækjandi þarf að gangast undir og standast öryggisvottun ríkislögreglustjóra.

Umsjón með starfinu hefur Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir, sviðsstjóri netöryggissviðs, (unnur@fjarskiptastofa.is)

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 05.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Unnur Kr Sveinbjarnardóttir

Sviðsstjóri

Tölvupóstur: unnur@fjarskiptastofa.is

Unnur Kr Sveinbjarnardóttir

Tölvupóstur: unnur@fjarskiptastofa.is

Þjónustuaðili

Fjarskipta­stofa

Upplýsingar um starf

Starf

Tímabundið starf lögfræðings á netöryggissviði Fjarskiptastofu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

26.10.2026

Umsóknarfrestur

05.11.2026