
Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Deildarstjóri á skrifstofu Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
08.09.2026
Umsóknarfrestur
21.09.2026
Deildarstjóri á skrifstofu Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar
Laust er til umsóknar fullt starf deildarstjóra á skrifstofu Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar Háskóla Íslands.
Deildarstjóri hefur umsjón með daglegum rekstri, fjármálum og þeirri þjónustu sem skrifstofa Hjúkrunar og ljósmóðurfræðideildar veitir vegna náms, kennslu og rannsókna. Viðkomandi starfar náið með deildarforseta, deildarráði og rekstrarstjóra Heilbrigðisvísindasviðs og er hluti af stoðþjónustu sviðsins. Undir deildarstjóra heyra um tíu manns og er vinnuaðstaða í Eirbergi, Eiríksgötu 34.
Helstu verkefni og ábyrgð
Daglegur rekstur og stjórnun stoðþjónustu Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar
Umsjón með fjármálum deildar, s.s. fjárhagsáætlun, kennsluáætlunum og -uppgjörum, rekstrar- og fjárhagsupplýsingum
Samstarf og aðstoð við deildarforseta, svo sem undirbúningur fyrir deildar- og deildarráðsfundi og utanumhald og eftirfylgni mála sem þar eru tekin fyrir
Þjónusta, þróun og efling starfsemi deildaskrifstofu í takt við stefnu Heilbrigðisvísindasviðs og Háskóla Íslands
Umsjón með gæða- og skjalamálum deildar
Undirbúningur fyrir fundi og viðburði á vegum deildarinnar
Ýmis tilfallandi verkefni í samráði við deildarforseta Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar, auk rekstrarstjóra og forseta Heilbrigðisvísindasviðs
Hæfniskröfur
Háskólapróf sem nýtist starfi, til dæmis á sviði viðskiptafræði eða stjórnunar. Meistarapróf er kostur
Reynsla af stjórnun og leiðtogahæfni
Reynsla af fjármálaverkefnum og rekstri
Reynsla af störfum í háskólaumhverfi og/eða í opinberri stjórnsýslu æskileg
Góð samstarfshæfni og rík þjónustulund
Góð færni í Excel
Gott vald á upplýsingatækni og hæfni til að tileinka sér nýjungar á því sviði
Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
Ferilskrá
Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins
Afrit af prófskírteinum
Upplýsingar um umsagnaraðila
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.
Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.
Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi. 36 stunda vinnuvika hefur verið innleidd í stjórnsýslustörfum skólans.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 21.09.2026
Nánari upplýsingar veitir

Þjónustuaðili
Háskóli Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Deildarstjóri á skrifstofu Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideildar
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
08.09.2026
Umsóknarfrestur
21.09.2026