Þjónustuaðili
DMR
Upplýsingar um starf
Starf
Schengen, fjármál og styrkir - er þetta starf fyrir þig?
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
01.10.2026
Umsóknarfrestur
12.10.2026
Schengen, fjármál og styrkir - er þetta starf fyrir þig?
Dómsmálaráðuneytið leitar að sérfræðingi til starfa í verkefnastýringu og umsýslu sjóða tengdum Schengen-samstarfinu á skrifstofu fjármála. Skrifstofan fer með málefni er varða fjármálaáætlun, rekstur og fjármál ráðuneytisins, húsnæðismál, stafræn verkefni og málefni landamærasjóðs.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felur í sér stefnumótun, verkefnastjórnun, uppgjör á verkefnum og undirbúning ákvarðana sem varða málefni styrktarsjóðs Evrópusambandsins um landamæri og áritanir (Border Management and Visa Instrument). Jafnframt felur starfið í sér samskipti, upplýsingagjöf og eftirfylgni vegna umsókna auk yfirferðar á tölulegum gögnum og framvinduskýrslum. Sérfræðingurinn sinnir stjórnsýslu- og vettvangsathugunum hjá styrkþegum, meðal annars með því að yfirfara hvort innkaup þeirra séu í samræmi við reglur um opinber innkaup, og tekur þátt í innra eftirliti og samskiptum við endurskoðendur.
Hæfniskröfur
Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Reynsla af verkefnastjórnun og stefnumótun er kostur.
Reynsla af yfirferð og úrvinnslu styrkumsókna er kostur.
Reynsla af umsýslu styrktarsjóða ESB og þekking á tilheyrandi regluverki er kostur.
Reynsla af greiningu fjárhagslegra gagna, innri endurskoðun eða innra eftirliti er kostur.
Þekking á lögum um opinber innkaup eða reynsla af framkvæmd og yfirferð innkaupaferla er kostur.
Góð samskiptahæfni, frumkvæði og lausnamiðuð hugsun.
Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni viðkomandi til að sinna starfinu. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsóknir skulu sendar gegnum starfatorg og gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna um auglýsingar á lausum störfum nr. 1000/2019.
Dómsmálaráðuneytið hvetur öll til þess að sækja um, óháð kyni.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 12.10.2026
Nánari upplýsingar veitir
Brynhildur Þorgeirsdóttir
skrifstofustjóri skrifstofu fjármála
Tölvupóstur: brynhildur.thorgeirsdottir@dmr.is
Þjónustuaðili
DMR
Upplýsingar um starf
Starf
Schengen, fjármál og styrkir - er þetta starf fyrir þig?
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
01.10.2026
Umsóknarfrestur
12.10.2026