Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Lífeinda- eða náttúrufræðingur á sýkla- og veirufræðideild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

22.09.2026

Umsóknarfrestur

05.10.2026

Lífeinda- eða náttúrufræðingur á sýkla- og veirufræðideild

Við leitum að tveimur jákvæðum, sjálfstæðum og metnaðarfullum einstaklingum til starfa á sýkla- og veirufræðideild Landspítala.

Á deildinni starfa yfir 90 manns í fjölbreyttu og þverfaglegu teymi sem sinnir mikilvægri og umfangsmikilli þjónustu við greiningu sýkinga af völdum baktería, veira, sveppa og sníkjudýra.

Hjá okkur ríkir góður starfsandi og við leggjum áherslu á fagmennsku, samvinnu og stöðugar umbætur. Við tökum vel á móti nýju fólki.

Starfsstöðvar deildarinnar eru á tveimur stöðum, annars vegar við Hringbraut og hins vegar í Ármúla.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Vinna við þjónusturannsóknir á sjúklingasýnum

  • Þátttaka í sérhæfðum verkefnum á sviði sýkla- og veirufræði eftir þörfum

  • Virk þátttaka í gæðastarfi og umbótaverkefnum

  • Vinna við upplýsingakerfi deildarinnar

  • Stuðla að góðri þjónustu og faglegri samvinnu

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf á heilbrigðis- eða náttúruvísindasviði ásamt íslensku starfsleyfi s.s. lífeindafræði, lífefna- og sameindalíffræði, líftækni eða sambærilegt

  • Reynsla af PCR, ELISA, bakteríuræktunum og greiningum er kostur

  • Góð tölvukunnátta

  • Góð skipulagshæfni, sjálfstæði og öguð vinnubrögð

  • Frumkvæði og hæfni til að takast á við fjölbreytt verkefni

  • Jákvætt viðmót, góð samskiptahæfni og fagleg framkoma

  • Hæfni til að starfa bæði sjálfstætt og í teymi

  • Góð kunnátta í íslensku og ensku

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Lífeindafræðingur, Lífefnafræðingur, Sameindalíffræði, Heilbrigðisvisindi

Tungumálahæfni: Íslenska 5/5, enska 4/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykavík

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 05.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Katrín Rún Jóhannsdóttir

Tölvupóstur: katrinrj@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Lífeinda- eða náttúrufræðingur á sýkla- og veirufræðideild

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

22.09.2026

Umsóknarfrestur

05.10.2026