Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur - Vopnafjörður - Hjúkrunarheimilið Sundabúð - Framtíðarstarf
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
80%
Starf skráð
26.08.2026
Umsóknarfrestur
07.09.2026
Hjúkrunarfræðingur - Vopnafjörður - Hjúkrunarheimilið Sundabúð - Framtíðarstarf
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðing á Hjúkrunarheimilið Sundabúð. Starfshlutfall er 80% eða samkvæmt samkomulagi ásamt bakvöktum. Um framtíðarstarf er að ræða. Fyrir aðflutta er möguleiki á aðstoð við húsnæði og flutningsstyrk.
Helstu verkefni og ábyrgð
Fagleg vinna hjúkrunarfræðings á hjúkrunarheimili, sinna heimahjúkrun á svæðinu og möguleiki er á að viðkomandi sinni afleysingu á heilsugæslu Vopnafjarðar.
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi er skilyrði. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu enda slagorð stofnunarinnar, samvinna um velferð.
Starfshlutfall er 80%
Umsóknarfrestur er til og með 07.09.2026
Nánari upplýsingar veitir
Íris Grímsdóttir
Tölvupóstur: iris.grimsdottir@hsa.is
Berglind Steindórsdóttir
Tölvupóstur: berglind.steindorsdottir@hsa.is
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingur - Vopnafjörður - Hjúkrunarheimilið Sundabúð - Framtíðarstarf
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
80%
Starf skráð
26.08.2026
Umsóknarfrestur
07.09.2026