
Þjónustuaðili
Fjársýslan
Upplýsingar um starf
Starf
Viltu byggja AI-agenta sem fara í raunverulega notkun?
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
26.10.2026
Umsóknarfrestur
05.11.2026
Viltu byggja AI-agenta sem fara í raunverulega notkun?
Komdu og mótaðu næstu kynslóð AI-lausna hjá Fjársýslunni
Við leitum að öflugum og lausnamiðuðum sérfræðingi sem vill breyta góðum hugmyndum í AI-lausnir sem nýtast í raun.
Hjá Fjársýslunni færð þú tækifæri til að þróa og innleiða AI-agenta sem einfalda verkferla, bæta þjónustu og styðja starfsfólk í daglegum störfum. Við vinnum hratt frá hugmynd að prófun og áfram í lausn sem skilar raunverulegu virði.
Starfið er tímabundið til 12-24 mánaða og gert er ráð fyrir ráðningu frá janúar 2027.
Helstu verkefni og ábyrgð
Hanna, þróa og innleiða AI-agenta fyrir raunveruleg verkefni.
Finna tækifæri þar sem gervigreind getur einfaldað vinnu og bætt þjónustu.
Tengja AI-lausnir við gögn, þekkingargrunna, kerfi og verkferla.
Prófa lausnir, mæla árangur og þróa þær áfram.
Tryggja öryggi, persónuvernd og ábyrga notkun gervigreindar.
Deila þekkingu og hjálpa til við að koma lausnum í notkun.
Fylgjast með þróun AI-agenta og prófa nýjar leiðir.
Hæfniskröfur
Þú þarft ekki að kunna allt. Við leitum fyrst og fremst að einstaklingi sem getur þróað lausnir, er forvitinn, hefur frumkvæði og vill láta hlutina gerast.
Það er mikilvægt að þú hafir:
háskólamenntun sem nýtist í starfi,
reynslu af hugbúnaðarþróun, samþættingum eða AI-lausnum,
þekkingu á stórum mállíkönum, RAG, API og meðhöndlun gagna,
þekkingu á SQL og þróunarumhverfi,
skilning á persónuvernd, upplýsingaöryggi og aðgangsstýringum,
getu til að vinna bæði sjálfstætt og með öðrum,
hæfni til að miðla tæknilegum viðfangsefnum skýrt á íslensku og ensku.
Það er plús ef þú þekkir MCP, VS Code, Codex, Claude Code, Microsoft Azure, Microsoft 365 eða Copilot Studio og/eða hefur unnið með TypeScript, C#/.NET eða Go.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf (hvort tveggja á íslensku) þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda til að gegna starfinu. Segðu okkur af hverju þetta verkefni höfðar til þín og hvað þú myndir vilja byggja með okkur.
Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni og við ráðningu í starfið er farið eftir jafnréttisstefnu Fjársýslunnar.
Af hverju Fjársýslan?
Hér færð þú tækifæri til að byggja, prófa og koma AI-lausnum í raunverulega notkun.
Þú færð:
svigrúm til að prófa nýjar hugmyndir og tækni,
verkefni þar sem árangurinn verður sýnilegur,
tækifæri til að hafa áhrif á hvernig gervigreind er nýtt í opinberri starfsemi,
samstarf við öflugt fólk með fjölbreytta þekkingu,
sveigjanlegt og faglegt starfsumhverfi.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 05.11.2026
Nánari upplýsingar veitir
Sigurjón Einar Þráinsson
Tölvupóstur: sigurjon.thrainsson@fjs.is

Þjónustuaðili
Fjársýslan
Upplýsingar um starf
Starf
Viltu byggja AI-agenta sem fara í raunverulega notkun?
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
26.10.2026
Umsóknarfrestur
05.11.2026