
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Aðstoðaryfirlæknir - HSN Sunnuhlíð Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
04.09.2026
Umsóknarfrestur
14.09.2026
Aðstoðaryfirlæknir - HSN Sunnuhlíð Akureyri
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) óskar eftir að ráða öflugan og metnaðarfullan aðstoðaryfirlækni til starfa í Sunnuhlið á Akureyri. Um er að ræða fjölbreytt og spennandi starf fyrr lækni sem hefur áhuga á að taka þátt í þróun og eflingu heilbrigðisþjónustu í nánu samstarfi við yfirlækni, aðra stjórnendur og öflugt þverfaglegt teymi.
Aðstoðaryfirlæknir gegnir mikilvægu hlutverk í faglegri forystu, gæðastarfi og daglegri starfsemi Sunnuhlíðar með áherslu á örugga, skilvirka og heildræna þjónustu.
HSN leggur ríka áherslu á fagmennsku, gott samstarf og virka teymisvinnu. Við bjóðum upp á styðjandi og metnaðarfullt starfsumhverfi þar sem starfsþróun, velferð starfsfólks og góður starfsandi eru hafðir að leiðarljósi. Hjá okkur gefst tækifæri til að taka þátt í að móta þjónustu sem skiptir samfélagið máli og hefur áhrif á lífsgæði fólks.
Næsti yfirmaður aðstoðaryfirlæknis er yfirlæknir HSN Sunnuhlíð Akureyri.
Kynntu þér hvers vegna þú ættir að koma norður og bætast í okkar öfluga hóp með því að smella á Komdu norður! | Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Hér má sjá upplýsingar um verkefnið Heilsueflandi vinnustaður en heilsugæslan á Akureyri var fyrst allra heilsugæslustöðva að innleiða verkefnið.
Helstu verkefni og ábyrgð
Staðgengill yfirlæknis
Styðja yfirlækni við faglega forystu og stjórnun læknisfræðilegra þátta starfseminnar
Taka þátt í skipulagningu, þróun og samræmingu heilbrigðisþjónustu í samræmi við stefnu og markmið HSN
Veita almenna læknisþjónustu og sinna heilsuvernd
Taka þátt í vaktþjónustu samkvæmt nánara samkomulagi
Stuðla að faglegum gæðum, öryggi og stöðugum umbótum í þjónustu
Efla þverfaglegt samstarf og stuðla að virkri teymisvinnu
Veita starfsfólki faglegan stuðning, leiðsögn og ráðgjöf
Taka þátt í gæðastarfi, innleiðingu verklags og þróunarverkefnum
Stuðla að góðum starfsanda og jákvæðri vinnustaðamenningu
Önnur tilfallandi stjórnunarverkefni
Hæfniskröfur
Íslenskt lækninga- og sérfræðileyfi í heimilislækningum er skilyrði
Haldbær reynsla af starfi við heimilislækningar
Framúrskarandi samskiptahæfni
Áhugi á stjórnun og gott álagsþol
Farsæl reynsla og þekking á teymisvinnu og þverfaglegu samstarfi
Leiðtogahæfni og áhugi á þróun þjónustu og gæðamálum
Áreiðanleiki og helgun í starfi
Mjög góð skipulagshæfni nauðsynleg og reynsla af innleiðingu nýjunga
Frumkvæði og lausnamiðuð nálgun
Góð íslensku-, ensku- og tölvukunnátta
Hreint sakavottorð, gott orðspor og ökuleyfi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Umsókninni skal fylgja náms- og starfsferilskrá auk kynningarbréfs á íslensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið út frá hæfniskröfum auglýsingarinnar. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um læknismenntun, læknisstörf og vísinda- og rannsóknarstörf ásamt afriti af starfsleyfi.
Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfatorg.is með því að smella á hlekkinn hér að neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.
Heilbrigðisstofnun Norðurlands vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.
Gildi stofnunarinnar eru Fagmennska - samvinna - virðing.
Heilbrigðisstofnun Norðurlands veitir heilsugæsluþjónustu, sjúkrahúsþjónustu og öldrunarþjónustu og rekur rúmlega 190 sjúkra-, hjúkrunar- og dvalarrými. HSN sinnir einnig sálfélagslegri þjónustu á svæðinu. Meginstarfsstöðvar HSN eru á Akureyri, Blönduósi, Dalvík/Fjallabyggð, Húsavík og á Sauðárkróki. Íbúar á starfssvæði HSN, sem nær frá Blönduósi til Þórshafnar eru rúm 37.000 og starfsfólk er rúmlega 800 talsins.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 14.09.2026
Nánari upplýsingar veitir
Hildur Ösp Gylfadóttir
framkvæmdastjóri mannauðs
Tölvupóstur: hildur.osp.gylfadottir@hsn.is
Sími: 825 7986

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Aðstoðaryfirlæknir - HSN Sunnuhlíð Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
04.09.2026
Umsóknarfrestur
14.09.2026