Þjónustuaðili
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra
Upplýsingar um starf
Starf
Skrifstofumaður
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
01.09.2026
Umsóknarfrestur
14.09.2026
Skrifstofumaður
Laus er til umsóknar staða skrifstofumanns við embætti sýslumannsins á Norðurlandi vestra á sýsluskrifstofunni á Sauðárkróki.
Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf 1. október n.k. eða sem næst því, eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða ótímabundna ráðningu með 6 mánaða reynslutíma.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn skrifstofustörf og móttaka gagna
Gjaldkerastörf
Upplýsingagjöf í síma og tölvupósti við viðskiptavini og hagsmunaaðila
Afgreiðsla og afhending gagna, svo sem þinglýstra skjala, vegabréfa, ökuskírteina, stæðiskorta, vottorða o.fl.
Umsjón með frágangi skjalasafns starfsstöðvarinnar, eftirfylgni með skjalaskráningu og skilum til Þjóðskjalasafns
Önnur tilfallandi verkefni sem sinnt er hjá embættinu.
Hæfniskröfur
Stúdentspróf (3. þrep íslenska hæfnirammans) eða reynsla í sambærilegu starfi
Önnur menntun sem nýtist í starfi er kostur
Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti
Reynsla af þjónustustörfum eða skjalavörslu er kostur, svo og önnur reynsla sem nýtist í starfi
Gott vald á upplýsingatækni og hæfni til að tileinka sér nýjungar á því sviði
Nauðsynlegt er að umsækjendur búi yfir ríkri samstarfs- og skipulagshæfni, nákvæmni og ögun í vinnubrögðum og getu til að vinna undir álagi. Einnig er krafa um að umsækjendur sýni frumkvæði, sjálfstæði, jákvæðni og metnað í starfi og hafi hæfni til að leiðbeina og miðla upplýsingum. Þess er vænst að umsækjendur hafi reynslu í fyrri störfum þar sem reynt hefur á þessa eiginleika.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsókn um starfið skal skila rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins og skulu fylgja:
Starfsferilskrá.
Upplýsingar um meðmælendur.
Stutt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjenda í starfið.
Afrit af prófskírteinum ef við á.
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að vanda umsóknir sínar. Við mat á umsóknum verður horft til þess að umsækjandi falli sem best að þörfum starfsstöðvar og embættisins í heild.
Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.
Einstaklingar óháð kyni eru hvött til að sækja um. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út með vísan til 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 464/1996 um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum, sbr. 2. mgr. 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Þann 1. janúar 2027 tekur nýtt sameinað sýslumannsembætti til starfa. Starfsfólk núverandi embætta verður starfsfólk hjá hinu nýja embætti.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 14.09.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra
Upplýsingar um starf
Starf
Skrifstofumaður
Staðsetning
Norðurland vestra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
01.09.2026
Umsóknarfrestur
14.09.2026