
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Iðjuþjálfi í sálfélagslega þjónustu barna á HSN
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
01.10.2026
Umsóknarfrestur
12.10.2026
Iðjuþjálfi í sálfélagslega þjónustu barna á HSN
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) leitar að iðjuþjálfa í sálfélagslega þjónustu barna. Staðan er tímabundin vegna fæðingarorlofs en með möguleika á fastráðningu. Við óskum eftir drífandi, metnaðarfullum og jákvæðum iðjuþjálfa sem hefur áhuga á að vinna samkvæmt klínískum leiðbeiningum við mat og meðferð barna og ungmenna sem glíma við geðrænan vanda. Sálfélagsleg þjónusta barna sinnir mati og ráðgjöf vegna barna með vægan til alvarlegan geðrænan vanda frá leikskólaaldri að 18 ára aldri. Lögð er áhersla á gagnreynt verklag, bæði í einstaklingsmeðferð og foreldramiðaðri meðferð.
Spennandi tímar eru framundan þar sem þjónustan er í umbreytingarferli skv. áætlun Heilbrigðisráðuneytisins (sjá Stöðuskýrslu um umbreytingar í geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn). Sömuleiðis er að fara af stað átaksverkefni varðandi frekari greiningar og meðferð vegna ADHD einkenna að lokinni frumgreiningu.
Iðjuþjálfar af öllum kynjum, reynslumiklir jafnt sem reynsluminni eru hvattir til þess að sækja um starfið. Hægt er að sinna starfinu frá öllum megin starfstöðvum HSN. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Meta færni, styrkleika og áskoranir barna og ungmenna við daglegar athafnir, svo sem sjálfsumönnun, skólagöngu, leik, tómstundir og félagslega þátttöku
Veita einstaklingsmiðaða iðjuþjálfun og ráðgjöf sem styður börn og ungmenni til aukinnar þátttöku í daglegu lífi
Setja markmið og skipuleggja íhlutun í samvinnu við barn, fjölskyldu og aðra fagaðila
Veita foreldrum og öðrum í nærumhverfi barns fræðslu og leiðbeiningar eftir þörfum
Taka þátt í þverfaglegu samstarfi innan geðheilsuteymisins og eiga samstarf við skóla og aðra þjónustuaðila þegar við á
Taka þátt í þróun, skipulagi og umbótum á þjónustu teymisins
Skrá þjónustu og fylgja eftir árangri í samræmi við verklag HSN
Stuðla að góðum starfsanda og menningu sálræns öryggis
Hæfniskröfur
Menntun í iðjuþjálfun og gilt starfsleyfi frá embætti landlæknis
Þekking á algengustu geðröskunum barna og ungmenna
Frumkvæði, áhugi og metnaður fyrir því að veita árangursríka, gagnreynda meðferð
Reynsla af teymisvinnu er kostur
Lausnamiðuð hugsun, framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni, jákvæðni og hlýtt viðmót
Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti
Gott orðspor, hreint sakavottorð og ökuleyfi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Iðjuþjálfafélag Íslands hafa gert.
Með umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá auk kynningarbréfs þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið. Með umsókn skal fylgja afrit af prófskírteini.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út.
HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntunar á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 12.10.2026
Nánari upplýsingar veitir
Alice Harpa Björgvinsdóttir
forstöðumaður sálfélagslegra þjónust
Tölvupóstur: alice.harpa.bjorgvinsdottir@hsn.is
Sími: 432 4970

Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Norðurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Iðjuþjálfi í sálfélagslega þjónustu barna á HSN
Staðsetning
Óstaðbundið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
01.10.2026
Umsóknarfrestur
12.10.2026