
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Íþróttafræðingur í sjúkraþjálfun á Hringbraut
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
08.10.2026
Umsóknarfrestur
19.10.2026
Íþróttafræðingur í sjúkraþjálfun á Hringbraut
Sjúkraþjálfun Landspítala við Hringbraut óskar eftir metnaðarfullum íþróttafræðingi til starfa. Um er að ræða dagvinnu og er starfshlutfall 100%.
Íþróttafræðingur starfar innan sjúkraþjálfunar og sinnir hreyfingu og þjálfun inniliggjandi sjúklinga. Starfið er fjölbreytt og felst annars vegar í umsjón með opinni hópþjálfun í æfingasal og hins vegar einstaklingsþjálfun sjúklinga á legudeildum í samstarfi við sjúkraþjálfara.
Íþróttafræðingur skipuleggur og útfærir þjálfun innan síns fagsviðs með það að markmiði að auka eða viðhalda styrk, úthaldi, færni og virkni sjúklinga. Starfið krefst sjálfstæðra vinnubragða, góðrar samstarfshæfni og hæfni til að aðlaga þjálfun að mismunandi getu og dagsformi sjúklinga.
Við leitum að einstaklingi sem hefur áhuga á að vinna með fjölbreyttum hópi sjúklinga á bráðasjúkrahúsi, hefur öryggi sjúklinga að leiðarljósi og er jákvæður og hvetjandi í samskiptum. Starfið er laust nú þegar og kostur er ef viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
Skipuleggja og sinna opinni hópþjálfun fyrir inniliggjandi sjúklinga í æfingasal
Sinna einstaklingsþjálfun sjúklinga á legudeildum í samráði við sjúkraþjálfara
Skipuleggja og útfæra þjálfun í samræmi við markmið, getu og dagsform sjúklings með áherslu á að auka eða viðhalda styrk, úthald, færni og virkni
Framkvæma stöðluð færni- og þolpróf og nýta niðurstöður þeirra við þjálfun eftir því sem við á
Hvetja og leiðbeina sjúklingum til hreyfingar og virkrar þátttöku í eigin þjálfun
Skráning í sjúkraskrá
Þátttaka í faglegri þróun, umbóta- og gæðastarfi
Hæfniskröfur
Háskólamenntun í íþrótta- og heilsufræði
Reynsla af vinnu með bráðveikum einstaklingum æskileg
Góð íslenskukunnátta
Faglegur metnaður, frumkvæði og ábyrgð í starfi
Mjög góð samskipta- og samstarfshæfni og jákvætt viðmót
Skipulagshæfni og sjálfstæð vinnubrögð
Þekking á þjónustuþáttum Landspítala
Sveigjanleiki og hæfni til að takast á við fjölbreyttar aðstæður
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Viska - stéttarfélag hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, endurhæfing, íþróttafræðingur, sjúkraþjálfun
Tungumálahæfni: íslenska 4/5
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 19.10.2026
Nánari upplýsingar veitir
Ragnheiður S Einarsdóttir
Tölvupóstur: ragnheie@landspitali.is
Ingibjörg Magnúsdóttir
Tölvupóstur: ingimagn@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Íþróttafræðingur í sjúkraþjálfun á Hringbraut
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
08.10.2026
Umsóknarfrestur
19.10.2026