Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í hjúkrun á speglunardeild Hringbraut

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

03.09.2026

Umsóknarfrestur

15.09.2026

Sérfræðingur í hjúkrun á speglunardeild Hringbraut

Starf sérfræðings í hjúkrun speglunarsjúklinga á speglunardeild 11D við Hringbraut er laust til umsóknar frá 1. október 2026 eða eftir nánara samkomulagi. Starfshlutfall er 80-100%.

Við leitum eftir einstaklingi sem hefur hæfileika til að leiða fólk saman, býr yfir farsælli reynslu af teymisstjórnun og leggur áherslu á að byggja upp traust og efla sálrænt öryggi í samstarfi.

Sérfræðingur í hjúkrun speglunarsjúklinga á speglunardeild starfar samkvæmt starfslýsingu sérfræðinga í hjúkrun á Landspítala. Starfið felur í sér framþróun hjúkrunar á deildinni, þátttöku í gæða- og umbótaverkefnum, ráðgjöf, kennslu og fræðslu til starfsfólks og nemenda, auk þátttöku í akademísku starfi og rannsóknum. Jafnframt sinnir sérfræðingur klínískum störfum á deildinni og tekur þátt í uppbyggingu, samræmingu og skipulagningu þjónustu við skjólstæðinga í samvinnu við aðrar heilbrigðisstéttir.

Speglunareiningin sinnir bæði almennum speglunum en er einnig sú sérhæfðasta á landinu og sinnir því sjúklingum alls staðar að.

Á deildinni starfar um 30 manna hópur samhents starfsfólks, í nánu samstarfi við marga sérfræðinga Landspítala. Starfsstöðvar eru tvær, við Hringbraut þar sem stærri hluti speglana fer fram og í Fossvogi. Deildin er í sókn á mörgum sviðum. Þjónusta við sjúklinga hefur verið bætt og aukin, mikil og góð samvinna er við aðra starfsemi spítalans og hafa svæfingar við flóknari inngrip aukist mikið. Það hefur verið forsenda fyrir því að nýjar tegundir inngripa eru í boði og eru frekari nýjungar og framþróun á stefnuskránni.

Sérfræðingur í hjúkrun vinnur sjálfstætt skv. reglugerð nr. 512/2013 og ber ábyrgð á starfi sínu gagnvart stofnun og næsta yfirmanni.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Þróun hjúkrunar og þjónustu við sjúklinga og aðstandendur þeirra innan sérgreinar

  • Frumkvæði að gæðaumbótum og innleiðingu nýrra verkferla meðal annars með markmið Landspítala í huga (óráð, þrýstingssár og byltuvarnir)

  • Er leiðandi í faglegri starfsþróun í hjúkrun speglunarsjúklinga

  • Klínísk störf á speglunardeild

  • Kennsla og fræðsla til starfsfólks, nemenda í grunn- og framhaldsnámi í heilbrigðisgreinum

  • Þátttaka í rannsóknarstarfi

  • Ráðgjöf til sjúklinga, aðstandenda og heilbrigðisstarfsfólks

  • Stuðlar að góðum starfsanda og teymisvinnu sem einkennist af trausti og sálrænu öryggi starfsfólks

Hæfniskröfur

  • Meistara- eða doktorspróf í hjúkrun

  • Íslenskt sérfræðileyfi sem sérfræðingur í hjúkrun

  • Starfsreynsla í hjúkrun speglunarsjúklinga

  • Mjög góð leiðtoga- og samskiptahæfni

  • Víðtæk reynsla af teymisvinnu

  • Reynsla af gæða og umbótaverkefnum

  • Góð íslenskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:

  • Fyrri störf, menntun og hæfni

  • Félagsstörf og umsagnaraðila

Nauðsynleg fylgiskjöl:

  • Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum

  • Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, rannsóknum, gæða- og þróunarverkefnum

  • Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið

Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Ákvörðun um ráðningu í starfið byggist á innsendum gögnum og viðtölum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur, hjúkrun, sérfræðingur í hjúkrun

Tungumálahæfni: íslenska 4/5

Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 15.09.2026

Nánari upplýsingar veitir

Þórhildur Höskuldsdóttir

Tölvupóstur: thorhiho@landspitali.is

Sími: 863-7556

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sérfræðingur í hjúkrun á speglunardeild Hringbraut

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

80-100%

Starf skráð

03.09.2026

Umsóknarfrestur

15.09.2026