Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnisstjóri fjármála við Háskóla Íslands á Hólum

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

13.11.2026

Umsóknarfrestur

23.11.2026

Verkefnisstjóri fjármála við Háskóla Íslands á Hólum

Laust er til umsóknar fullt starf verkefnisstjóra fjármála hjá Háskóla Íslands á Hólum. Starfið heyrir undir rekstrarstjóra Háskóla Íslands á Hólum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Yfirferð og samþykkt reikninga

  • Kostnaðargreiningar og gagnaúrvinnsla

  • Aðstoð við innkaup og utanumhald innkaupabeiðna

  • Aðstoð við fjármál rannsóknaverkefna og utanumhald rannsóknareikninga

  • Umsjón með fjármálum og þjónustu gagnvart nemendagörðum

  • Umsjón með áætlunum og eftirfylgni með rekstri hestabús og kynbótastöðvar

  • Þátttaka í gerð fjárhagsáætlunar og eftirfylgni í samráði við rekstrarstjóra

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf sem nýtist í starfi, t.d. á sviði viðskiptafræði, fjármála eða skyldra greina

  • Reynsla af fjármálaverkefnum og notkun bókhalds-, fjárhagsupplýsinga- og fjárhagsáætlanakerfa

  • Góð færni í Excel

  • Reynsla af starfi í opinberri stjórnsýslu er kostur

  • Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli

  • Þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum

  • Sjálfstæði og frumkvæði í starfi

Frekari upplýsingar um starfið

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.

Gert er ráð fyrir að viðkomandi hefji störf sem fyrst eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Starfsstöð er á Norðurlandi vestra með reglubundinni viðveru á starfsstöðvum HÍ á Hólum og á Sauðárkróki.

Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:

  • Ferilskrá

  • Kynningarbréf þar sem fjallað er um hvernig umsækjandi uppfyllir þær hæfnikröfur sem settar eru fram í auglýsingunni og hvað hann telur sig geta lagt af mörkum til starfsins

  • Afrit af prófskírteinum

  • Upplýsingar um tvo umsagnaraðila þar sem fram koma tengsl við umsækjanda, netfang og símanúmer

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknafrests.

Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans. Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.

Háskóli Íslands hefur frá stofnun verið undirstaða atvinnulífs og framfara í íslensku samfélagi. HÍ er jafnframt framsækinn rannsóknarháskóli og virkur þátttakandi í alþjóðlegu vísindasamstarfi.

Háskóli Íslands er stærsti háskóli landsins og býður upp á hátt í 400 námsleiðir á grunn-, meistara- og doktorsstigi. Um 14.000 nemendur stunda nám við skólann, þar af yfir 2.000 alþjóðlegir nemar.

Við Háskóla Íslands starfa yfir 1.800 manns. Skólinn leggur áherslu á að laða til sín fjölbreyttan hóp starfsfólks og stúdenta í alþjóðlegt fræðasamfélag þar sem akademískt frelsi, fagmennska, jafnrétti, fjölbreytileiki og inngilding eru í öndvegi.

Nánar um Háskóla Íslands, fræðasvið hans og deildir

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 23.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sigfús Ingi Sigfússon

Tölvupóstur: sigfusingi@hi.is

Þjónustuaðili

Háskóli Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnisstjóri fjármála við Háskóla Íslands á Hólum

Staðsetning

Norðurland vestra

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

13.11.2026

Umsóknarfrestur

23.11.2026