Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliði - Neskaupstaður - Sjúkradeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
09.07.2026
Umsóknarfrestur
30.07.2026
Sjúkraliði - Neskaupstaður - Sjúkradeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða sjúkraliða á sjúkradeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað. Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi. Unnið er á vötkum og er staðan laus frá 1. september eða eftir samkomulagi.
HSA er metnaðarfullur vinnustaður þar sem um 470 manns starfa á fjórtán starfsstöðvum. Á stofnuninni er unnið markvisst að góðum starfsanda og byggir HSA þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Unninn eru almenn sjúkraliðastörf á hand- og lyflækningadeild og vinna sjúkraliðar með breiðum hópi skjólstæðinga. Umdæmissjúkrahús Austurlands sinnir bráðaþjónustu fyrir allt Austurland. Þetta er kjörið tækifæri fyrir sjúkraliða sem vilja starfa og öðlast fjölbreytta reynslu í hjúkrun.
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.07.2026
Nánari upplýsingar veitir
Heiða Berglind Svavarsdóttir
Tölvupóstur: heida.b.svavarsdottir@hsa.is
Sigríður Kristinsdóttir
Tölvupóstur: sigridur.kristinsdottir@hsa.is
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Upplýsingar um starf
Starf
Sjúkraliði - Neskaupstaður - Sjúkradeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands
Staðsetning
Austurland
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
09.07.2026
Umsóknarfrestur
30.07.2026