Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Verkmennta­skólinn á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Kennari í matvælagreinum og matreiðslu

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

70-100%

Starf skráð

21.10.2026

Umsóknarfrestur

02.11.2026

Kennari í matvælagreinum og matreiðslu

Verkmenntaskólinn á Akureyri auglýsir stöðu kennara á matvælabraut lausa til umsóknar. Helstu kennslugreinar eru kennsla í grunndeild, fag- og verklegar greinar í matreiðslu og matartækni auk tengdra greina. Leitað er að einstaklingi með jákvætt hugarfar og mikla samskiptahæfni sem hefur áhuga á að vinna með og kenna ungu fólki. Leitað er að einstaklingi sem hefur áhuga á að miðla þekkingu sinni og taka þátt í uppbyggingu og þróun náms á matvælasviði. Um er að ræða 70-100% starf frá janúar 2027.

Helstu verkefni og ábyrgð

Kennsla matvælagreina samkvæmt námskrá skólans. Leitað er að vel menntuðum kennara með kennsluréttindi og með sérhæfingu á viðkomandi sviði. Kennari ber ábyrgð á kennslu, undirbúningi og námsmati í greininni og tekur þátt í faglegu samstarfi kennara við skólann. Leiðsögn og stuðningur við nemendur í námi og verklegri þjálfun. Þátttaka í þróun náms og kennsluhátta á brautinni. Sérstaklega er sóst eftir kennara sem sýnir frumkvæði í starfi, mjög góða samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum.

Hæfniskröfur

  • Menntun og/eða starfsréttindi sem nýtast til í starfi svo sem matreiðslumeistari

  • Kennsluréttindi.

  • Reynsla af kennslu og/eða leiðsögn er kostur.

  • Starfsreynsla á sviði matreiðslu eða skyldra greina er kostur.

  • Frumkvæði, sveigjanleiki, öguð vinnubrögð og jákvætt hugarfar.

  • Mjög góð hæfni í samskiptum og ríkur samstarfsvilji.

  • Hæfni til að vinna í teymi og taka þátt í þróunarstarfi.

  • Góð tölvukunnátta.

  • Hæfni í íslenskukunnátta í ræðu og riti.

  • Áhugi á að vinna með ungu fólki.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.

Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt afriti af prófskírteinum og leyfisbréfum. Umsækjendur sendi jafnframt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og sýn viðkomandi á sjálfum sér sem kennara ásamt rökstuðningi fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Sé umsjækjandi í kennsluréttindanámi skal yfirlit yfir námsframvindu fylgja með umsókn ásamt staðfestingu frá háskóla á umsókn um kennsluréttindanám fyrir næsta skólaár.

Í samræmi við jafnréttisáætlun skólans er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um starfið. Áskilinn er réttur til að nýta auglýsinguna í 6 mánuði frá ráðningu. Ákvörðun um ráðningu byggir á innsendum gögnum og viðtölum. Við ráðningu verður horft til þess að sá sem starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum deildar og sviðs. Ráðið er í starfið frá 1. janúar 2027.

Tekið skal fram að skv. 4. mgr. 8. gr. laga framhaldsskóla nr. 92/2008 er óheimilt að ráða einstakling til starfa við framhaldsskóla sem hlotið hefur refsidóm fyrir brot á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga. Umsækjandi þarf að skila inn sakavottorði með umsókn.

Verkmenntaskólinn á Akureyri hefur fengið ISO-9001 gæðavottun. Nánari upplýsingar um skólann eru á heimasíðu hans vma.is. Einkunnarorð skólans eru Fagmennska - fjölbreytni - virðing.

Starfshlutfall er 70-100%

Umsóknarfrestur er til og með 02.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Benedikt Barðason

skólameistari

Tölvupóstur: benedikt.bardason@vma.is

Sími: 4640300

Ásta Fönn Flosadóttir

aðstoðarskólameistari

Tölvupóstur: asta.fonn.flosadottir@vma.is

Sími: 4640300

Þjónustuaðili

Verkmennta­skólinn á Akureyri

Upplýsingar um starf

Starf

Kennari í matvælagreinum og matreiðslu

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

70-100%

Starf skráð

21.10.2026

Umsóknarfrestur

02.11.2026