Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Þjóðskrá

Upplýsingar um starf

Starf

Fulltrúi í þjónustu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

24.09.2026

Umsóknarfrestur

05.10.2026

Fulltrúi í þjónustu

Þjóðskrá leitar að metnaðarfullum einstaklingum með ríka þjónustulund á sviði Þjónustu hjá stofnuninni. Viðkomandi munu starfa með sterku teymi þvert á stofnunina að fjölbreyttum verkefnum. Þjóðskrá leggur áherslu á góða þjónustu og nýtingu stafrænna lausna og mikilvægt er að umsækjendur samsami sig þeirri sýn. Verkefnin eru krefjandi og kalla á frumkvæði og lausnamiðaða hugsun sem viðkomandi taka þátt í að móta hjá stofnuninni.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Símsvörun, netspjall og svörun tölvupósts.

  • Móttaka og afgreiðsla viðskiptavina í afgreiðslu.

  • Leiðbeina viðskiptavinum í sjálfsafgreiðslu í afgreiðslurými.

  • Framleiðsla vegabréfa og annarra skilríkja.

  • Innleiðing og mótun stafrænna lausna.

  • Þátttaka í umbótastarfi.

Hæfniskröfur

  • Þekking sem nýtist í starfi.

  • Reynsla af skrifstofu-eða þjónustustarfi er kostur.

  • Mjög góð tölvukunnátta.

  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta.

  • Frumkvæði, þjónustulund og sjálfstæði í vinnubrögðum.

  • Vönduð vinnubrögð.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Um er að ræða fullt starf og laun samkvæmt kjarasamningum ríkisstarfsmanna. Umsóknarfrestur er til og með 5. október 2026.

Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Umsóknir óskast sendar í Alfreð ráðningakerfi. Athygli er vakin á að umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Nánari upplýsingar veitir Gígja Hjaltadóttir, mannauðssérfræðingur gigja.hjaltadottir@skra.is

Hlutverk Þjóðskrár er að greiða götu fólks og fyrirtækja í samfélaginu og gæta upplýsinga um réttindi þeirra. Það gerum við með því að safna, varðveita og miðla upplýsingum um íbúa landsins.

Við leggjum ríka áherslu á jákvæð samskipti og góða samvinnu sem er undirstaða góðrar þjónustu. Við teljum eftirsóknarvert að fá til liðs við okkur þau sem vilja starfa í anda gilda okkar um gleði, kraft og samvinnu. Við kunnum vel að meta frumkvæði, nákvæmni og hraða í vinnubrögðum og nýtum aðferðir straumlínustjórnunar til að gera betur í dag en í gær. Við hvetjum öll kyn til að sækja um.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 05.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Gígja Hjaltadóttir

mannauðssérfræðingur

Tölvupóstur: gh@skra.is

Þjónustuaðili

Þjóðskrá

Upplýsingar um starf

Starf

Fulltrúi í þjónustu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

24.09.2026

Umsóknarfrestur

05.10.2026