Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingar - Hlévangur, Reykjanesbæ
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
08.09.2026
Umsóknarfrestur
21.09.2026
Hjúkrunarfræðingar - Hlévangur, Reykjanesbæ
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðinga til starfa á hjúkrunardeild Hlévangs í Reykjanesbæ.
Hlévangur er ný deild innan HSS sem opnar í október 2026. Deildin verður 24 rýma hjúkrunardeild fyrir einstaklinga sem bíða eftir dvöl á hjúkrunarheimili.
Leitað er eftir áhugasömum einstaklingum með frumkvæði, faglegan metnað og jákvætt hugarfar til að taka þátt í þróun í heilbrigðisþjónustu við aldraða. Einstakt tækifæri til að taka þátt í þeirri uppbyggingu sem á sér stað í heilbrigðisþjónustu á Suðurnesjum.
Um er að ræða vaktavinnu. Störfin eru laus frá 1. október 2026 eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn hjúkrun og vaktstjórn
Ábyrgð á hjúkrun á deild
Skipulagning hjúkrunarmeðferðar
Samskipti, hvatning og stuðningur við skjólstæðinga og aðstandendur
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Reynsla og áhugi á þjónustu við aldraða
Faglegur metnaður og leiðtogahæfni
Góð samskiptahæfni
Sjálfstæði í og frumkvæði í starfi
Gott vald á íslensku bæði í mæltu og rituðu máli
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum.
Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði.
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 21.09.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Upplýsingar um starf
Starf
Hjúkrunarfræðingar - Hlévangur, Reykjanesbæ
Staðsetning
Suðurnes
Starfshlutfall
50-100%
Starf skráð
08.09.2026
Umsóknarfrestur
21.09.2026