Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Barna- og fjölskyldu­stofa

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnastjóri á meðferðarheimilinu Esju

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

22.09.2026

Umsóknarfrestur

05.10.2026

Verkefnastjóri á meðferðarheimilinu Esju

Vilt þú taka þátt í gefandi og krefjandi starfi með unglingum?

Barna- og fjölskyldustofa óskar eftir að ráða verkefnastjóra skóla og atvinnumála á meðferðarheimilinu Esju, um er að ræða fastráðningu í 100% starf í dagvinnu. Starfið heyrir undir forstöðumann Esju.

Starfsstöð Esju er tímabundið staðsett á Vogi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Hafa umsjón með og skipuleggja skóla og atvinnuþátttöku skjólstæðinga.

  • Vera tengiliður meðferðarheimilisins við heimaskóla skjólstæðinga og vinnustaði.

  • Einstaklingsbundinn stuðningur við unglinga í samvinnu við deildarstjóra, sálfræðinga og forstöðumann.

  • Meðferðarvinna samkvæmt meðferðaráætlun skjólstæðinga.

  • Samskipti við foreldra og samstarfsaðila.

  • Vinna eftir verklagsreglum meðferðarheimilisins.

  • Önnur verkefni í samráði við yfirmenn.

Hæfniskröfur

  • BA/BS próf sem nýtist í starfi að mati forstöðumanns.

  • Reynsla og þekking af gagnreyndum aðferðum í meðferðarvinnu með unglingum.

  • Góð íslenskukunnátta, bæði í töluðu og rituðu máli.

  • Góð færni í mannlegum samskiptum.

  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulag í vinnubrögðum.

  • Gott líkamlegt atgervi og andlegt heilbrigði.

  • Góð almenn tölvukunnátta

  • Gild ökuréttindi.

  • Einnig er lögð áhersla á aðra persónulega eiginleika, svo sem sveigjanleika, jákvætt viðhorf til skjólstæðinga og áhuga á að starfa með ungmennum.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Við úrvinnslu umsókna um störfin gildir mat Barna- og fjölskyldustofu á hæfni og eiginleikum umsækjenda. Vakin er athygli á að stofnunin aflar sjálf upplýsinga úr sakaskrá áður en viðkomandi hefur störf. Barna- og fjölskyldustofa hvetur öll til að sækja um, óháð kyni.

Með umsóknum skulu fylgja upplýsingar um menntun og fyrri störf. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Allar umsóknir gilda í sex mánuði frá birtingu ef starf losnar að nýju innan þess tíma.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 05.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Marta María Ástbjörnsdóttir

Tölvupóstur: marta.maria.astbjornsdottir@bofs.is

Sigríður Ólafsdóttir

Tölvupóstur: sigridur.olafsdottir@bofs.is

Þjónustuaðili

Barna- og fjölskyldu­stofa

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnastjóri á meðferðarheimilinu Esju

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

22.09.2026

Umsóknarfrestur

05.10.2026