Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnastjóri á verkefnastofu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

10.09.2026

Umsóknarfrestur

24.09.2026

Verkefnastjóri á verkefnastofu

Verkefnastofa Landspítala leitar að öflugum og framsýnum verkefnastjóra til að leiða fjölbreytt og margþætt verkefni. Teymið heyrir undir skrifstofu forstjóra og starfar þvert á svið spítalans. Ef þú hefur áhuga á að hafa áhrif og stýra verkefnum sem móta heilbrigðisþjónustu framtíðar á Íslandi, þá gæti þetta verið starf fyrir þig.

Við leitum að einstaklingi

  • með mikla greiningarhæfni og tæknilæsi.

  • með framúrskarandi leiðtogahæfileika og getu til að veita þverfaglegum teymum innblástur.

  • með framúrskarandi samskiptahæfileika og getu til að vinna þvert á flóknar skipulagsheildir.

  • með vaxandi hugarfar og metnað fyrir sí- og endurmenntun sem styður við uppbyggingu einstaklings sem og verkefnastofu sem heild.

  • sem sýnir frumkvæði í verki, drifkraft og lausnamiðaða hugsun.

Helstu verkefni og ábyrgð

Verkefnastofa Landspítala vinnur samkvæmt aðferðafræði faglegrar verkefnastjórnunnar og þar vinna 15 verkefnastjórar í dag. Áherslur í starfi eru m.a.:

  • Leiðtogi í verkefnavinnu: er fyrirmynd í stöðugum umbótum, leiðir fjölbreytt verkefni og stuðlar að því að þau nái settum markmiðum. Verkefnastjóri styður við að verkefni séu valin í samræmi við stefnumótandi markmið.

  • Þverfagleg samvinna: vinnur náið með stjórnendum og starfsfólki spítalans ásamt öðrum hagsmunaaðilum og stuðlar að menningu samstarfs, umbóta og nýjunga.

  • Gæði og öryggi: tryggir að unnið sé samkvæmt stjórnarháttum verkefnastofu og að verkefni skili mælanlegum niðurstöðum. Öryggi sjúklinga og starfsfólks er ávallt haft að leiðarljósi í verkefnavinnu.

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, svo sem verkfræði

  • Staðfest reynsla og hæfni í faglegri verkefnastjórnun

  • Reynsla í hlutverki verkefnastjóra í umfangsmiklum verkefnum og verkefnastofnum

  • Kunnátta í kortlagningu ferla og þarfagreiningum

  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli

  • Reynsla af innleiðingum stafrænna lausna er kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, verkefnastjóri, verkefnastjórnun, sérfræðistörf

Tungumálahæfni: íslenska 4/5, enska 4/5¿

Staðsetning: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 24.09.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sandra Gestsdóttir

Tölvupóstur: sandrag@landspitali.is

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Verkefnastjóri á verkefnastofu

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

10.09.2026

Umsóknarfrestur

24.09.2026