Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Austur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðarmatráður - Neskaupstaður - Eldhús

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

21.10.2026

Umsóknarfrestur

04.11.2026

Aðstoðarmatráður - Neskaupstaður - Eldhús

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða aðstoðarmatráð í mötuneyti Umdæmissjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað. Starfshlutfall er 100% eða samkvæmt samkomulagi og um vaktavinnu er að ræða. Staðan veitist frá og með 1.desember.

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið felur í sér matreiðslu og framreiðslu máltíða fyrir Umdæmissjúkrahúsið í Neskaupstað, afleysingar fyrir matráð eftir þörfum og aðstoð við skipulagningu á vinnuskipulagi í eldhúsinu.

Hæfniskröfur

Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi og skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi hafa gert.

Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar fjórtán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu enda slagorð stofnunarinnar, samvinna um velferð.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 04.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Óli Freyr Axelsson

Tölvupóstur: oli.f.axelsson@hsa.is

Loftur Gíslason

Tölvupóstur: loftur.gislason@hsa.is

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Austur­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Aðstoðarmatráður - Neskaupstaður - Eldhús

Staðsetning

Austurland

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

21.10.2026

Umsóknarfrestur

04.11.2026