
Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðilæknar í geðlækningum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
15.10.2026
Umsóknarfrestur
02.11.2026
Sérfræðilæknar í geðlækningum
Leitað er eftir sérfræðilæknum í geðlækningum sem hafa áhuga á að vinna í umhverfi þar sem fjölbreytni, metnaður og þverfagleg teymisvinna eru í fyrirrúmi, með áherslu á umbótastarf og öryggi. Um er að ræða fjölbreytt störf á ýmsum einingum innan geðþjónustunnar og eru umsækjendur hvattir til að nefna áhugasvið sitt í umsóknarferlinu.
Geðþjónusta Landspítala er stærsti þjónustuveitandi 3. stigs geðheilbrigðisþjónustu á Íslandi og veitir ráðgjöf til geðþjónustuaðila á landinu öllu.
Störf sérfræðilækna í geðþjónustu eru á legudeildum, dagdeildum og göngudeildum, í bráðaþjónustu, endurhæfingarþjónustu og réttar- og öryggisgeðþjónustu, sem og á meðferðareiningum geðrofssjúkdóma og lyndisraskana.
Störfin eru laus frá 1. desember 2026 eða eftir nánara samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Mat og greining á bráðum og alvarlegum geðrænum vanda
Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu
Þátttaka í kennslu og vísindastarfi, fræðslu og handleiðslu
Þátttaka í gæða-, umbóta- og rannsóknastarfi
Vaktþjónusta geðlækna og ráðgjöf geðlækna í geðþjónustu
Hæfniskröfur
Íslenskt sérfræðileyfi í geðlækningum
Áhugi á að veita vandaða og gagnreynda meðferð
Áhugi á að starfa í sérhæfðri geðheilbrigðisþjónustu bráðasjúkrahúss
Mikil hæfni í samskiptum áskilin, faglegur metnaður og sjálfstæði í vinnubrögðum
Áhugi á þróun og sérhæfingu í starfi, sveigjanleiki til að tileinka sér nýjungar
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.3 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
Fyrri störf, menntun og hæfni
Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum
Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum
Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed
Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið
Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.
Viðtöl verða tekin við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir,
Tungumálahæfni: Íslenska 4/5, enska 4/5
Staðsetning: Hringbraut, 101 Reykjavík
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.11.2026
Nánari upplýsingar veitir
Halldóra Jónsdóttir
Tölvupóstur: halldjon@landspitali.is

Þjónustuaðili
Landspítali
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðilæknar í geðlækningum
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
80-100%
Starf skráð
15.10.2026
Umsóknarfrestur
02.11.2026