Þjónustuaðili
Vegagerðin
Upplýsingar um starf
Starf
Starfsfólk á þjónustustöð á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
09.10.2026
Umsóknarfrestur
19.10.2026
Starfsfólk á þjónustustöð á Akureyri
Vegagerðin óskar eftir áreiðanlegu starfsfólki til að sinna fjölbreyttum verkefnum á þjónustustöðinni á Akureyri.
Unnið er á opnunartíma þjónustustöðvar en starfsfólk sinnir jafnframt bakvöktum utan dagvinnutíma frá október-apríl alla daga vikunnar, vegna eftirlits með færð og vetrarþjónustu.
Vegagerðin rekur 18 þjónustustöðvar víðs vegar um landið og sjá þær um almenna þjónustu og viðhald vega og vegbúnaðar á sínu starfssvæði. Hlutverk þjónustustöðva er að sjá til þess að ástand vega, vegsvæða og samgöngumannvirkja sé þannig að umferð gangi sem greiðast og öruggast fyrir sig, allan ársins hring.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn dagleg þjónusta og viðhald á vegakerfinu á starfssvæði þjónustustöðvarinnar
Eftirlit með færð á vegum og upplýsingagjöf um ástand vega
Vinna við uppsetningu og viðhald umferðarmerkja, vegvísa, stika og vegriða
Holuviðgerðir og hreinsun ristahliða
Ýmis önnur vinna á þjónustustöð
Hæfniskröfur
Almenn ökuréttindi skilyrði
Vinnuvélaréttindi æskileg
Meirapróf æskilegt
Hæfni í mannlegum samskiptum
Frumkvæði og hæfni til að vinna sjálfstætt sem og í hóp
Gott vald á íslensku og ensku
Góð öryggisvitund
Hæfni til að nota tölvur og stafrænar lausnir í starfi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Eining - Iðja hafa gert.
Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdastofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru. Vegagerðin þróar og annast samgöngukerfi, á sjó og landi, á sem hagkvæmastan hátt með þarfir samfélagsins, öryggi vegfarenda og umhverfissjónarmið að leiðarljósi.
Áhugasamir einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um. Umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og færni viðkomandi til að gegna starfinu. Afrit af ökuréttindum þarf að fylgja umsókn. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 19.10.2026
Nánari upplýsingar veitir
Þjónustuaðili
Vegagerðin
Upplýsingar um starf
Starf
Starfsfólk á þjónustustöð á Akureyri
Staðsetning
Norðurland eystra
Starfshlutfall
100%
Starf skráð
09.10.2026
Umsóknarfrestur
19.10.2026