Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraliði á hjarta-, lungna-, augnskurðdeild og nýrnalækningadeild 12G

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

20.10.2026

Umsóknarfrestur

03.11.2026

Sjúkraliði á hjarta-, lungna-, augnskurðdeild og nýrnalækningadeild 12G

Langar þig að starfa á lifandi og fjölbreyttri deild þar sem enginn dagur er eins?

Á 12G vinnur þú með einn fjölbreyttasta sjúklingahóp Landspítala. Deildin sinnir bæði skurðsjúklingum og lyflækningasjúklingum og sérhæfir sig í hjúkrun sjúklinga eftir brjóstholsskurðaðgerðir og nýrnasjúklinga. Við bjóðum því upp á einstakt tækifæri til að þróa fjölbreytta þekkingu og færni sem og mikla sérhæfingu.

Við leggjum áherslu á:

  • Fjölbreytt og krefjandi starf með fjölbreytt verkefni og faglegar áskoranir

  • Margvísleg tækifæri til starfsþróunar og náms

  • Öflugt teymisstarf og góðan starfsanda

  • Sterka liðsheild þar sem framlag þitt skiptir máli

  • Góðar og faglegar móttökur nýs starfsfólks með einstaklingsmiðaðri aðlögun

Vinnuvikan er 36 stundir fyrir starfsfólk í fullri vaktavinnu og getur orðið minni eftir samsetningu vakta. Markmiðið er að stuðla að betri heilsu og öryggi starfsfólks og auka möguleika þess til að samþætta betur vinnu og einkalíf.

Starfið er laust nú þegar eða eftir samkomulagi.

Ef þú hefur áhuga á að vinna á spennandi deild þar sem fagmennska, samvinna og vellíðan starfsfólks eru í fyrirrúmi, viljum við heyra frá þér.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Hjúkrun einstaklinga í samvinnu við aðra fagaðila

  • Virk þátttaka í fjölskylduhjúkrun

  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu

  • Þátttaka í þróun og umbótum

  • Stuðla að góðum samstarfsanda

Hæfniskröfur

  • Íslenskt starfsleyfi sjúkraliða

  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

  • Góð samskiptahæfni, jákvæðni og áhugi á teymisvinnu

  • Hæfni til að vinna vel undir álagi

  • Góð íslenskukunnátta áskilin

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi og afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi.

Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Öllum umsóknum verður svarað.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem um 7000 einstaklingar starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.

Landspítali hefur hlotið jafnlaunavottun samkvæmt jafnlaunastaðlinum ÍST85:2012, úttekt framkvæmd af Versa vottun ehf.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, sjúkraliði, hjúkrun, teymisvina

Tungumálahæfni: íslenska 3/5

Staðsetning: Hringbraut 101 Reykjavík

Starfshlutfall er 50-100%

Umsóknarfrestur er til og með 03.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Sigurdís Ólafsdóttir

deildarstjóri

Tölvupóstur: sigurdio@landspitali.is

Sími: 862-4512

Þjónustuaðili

Landspítali

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraliði á hjarta-, lungna-, augnskurðdeild og nýrnalækningadeild 12G

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

50-100%

Starf skráð

20.10.2026

Umsóknarfrestur

03.11.2026