Þjónustuaðili
Þjóðminjasafn Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í skráningu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
70%
Starf skráð
31.08.2026
Umsóknarfrestur
15.09.2026
Sérfræðingur í skráningu
Þjóðminjasafn Íslands leitar að öflugum einstaklingi í starf sérfræðings í skráningu. Leitað er eftir einstaklingi sem hefur brennandi áhuga á safnastarfi og menningarsögu.
Í boði er áhugavert starf á munasviði þar sem hópur sérfræðinga vinnur að faglegu safnastarfi og þjóðminjavörslu, þ.e. söfnun, skráningu, varðveislu, rannsóknum og miðlun safnkosts. Aðalstarfsstöð viðkomandi starfsmanns verður á Tjarnarvöllum 11 í Hafnarfirði.
Vinnustaðurinn okkar er fjölbreyttur og lifandi, þar sem sköpun, fræðsla og varðveisla menningararfsins fléttast saman í hvetjandi og framsæknu umhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Skráning í skráningarkerfið Sarp
Vinna við afgreiðslu pantana á ljósmyndum
Umsýsla með safnkost
Þjónusta við einstaklinga og stofnanir
Móttaka og úrvinnsla fyrirspurna
Þátttaka í öðrum verkefnum á munasviðis
Hæfniskröfur
Háskólapróf (BA/BS) sem nýtist í starfi
Menntun og/eða reynsla á sviði varðveislu og meðhöndlun ljósmynda er kostur
Reynsla af safnastarfi æskileg
Reynsla af skráningu í skráningarkerfi æskileg
Góð færni í íslensku og ensku, jafnt töluðu sem rituðu máli
Góð almenn tölvufærni
Skipulagshæfni, lipurð í mannlegum samskiptum og jákvætt viðmót
Frumkvæði, nákvæmni og metnaður í starfi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Viska - stéttarfélag hafa gert.
Þjóðminjasafn Íslands er vísinda- og þjónustustofnun og höfuðsafn á sviði menningarminja og rannsókna á menningarsögulegum minjum í landinu. Hlutverk þess er að auka og miðla þekkingu á menningararfi íslensku þjóðarinnar. Þjóðminjasafn Íslands starfar á grundvelli safnalaga nr. 141/2011, lögum um Þjóðminjasafn Íslands nr. 140/2011 og lögum um menningarminjar nr. 80/2012.
Starfið hentar öllum kynjum og áhugasöm eru hvött til að sækja um enda er við ráðningar í störf hjá safninu tekið mið af jafnréttisáætlun stofnunarinnar.
Um hlutastarf er að ræða og æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í haust.
Umsókn skulu fylgja yfirlit og greinargóðar upplýsingar um störf umsækjenda og menntun ásamt kynningarbréfi, á íslensku, þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknir á erlendum tungumálum, án kynningarbréfs eða án ferilskráa verða ekki teknar til greina. Einnig skal fylgja umsókn staðfesting á prófgráðum. Við ákvörðun um boðun í starfsviðtal verður sérstaklega horft til gæða umsóknargagna. Við ákvörðun um ráðningu verður, auk framangreindra hæfnisviðmiða, tekið mið af frammistöðu í starfsviðtölum og umsagna sem aflað er.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Starfshlutfall er 70%
Umsóknarfrestur er til og með 15.09.2026
Nánari upplýsingar veitir
Ágústa Kristófersdóttir
Framkvæmdastjóri munasviðs
Tölvupóstur: agusta@thjodminjasafn.is
Sími: 620-7744
Þjónustuaðili
Þjóðminjasafn Íslands
Upplýsingar um starf
Starf
Sérfræðingur í skráningu
Staðsetning
Höfuðborgarsvæðið
Starfshlutfall
70%
Starf skráð
31.08.2026
Umsóknarfrestur
15.09.2026